1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

9
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

Dómurinn taldi að framburður hennar hefði verið ekki í samræmi við gögn málsins

peningar
Íslenskir seðlar
Mynd: Bernhard Richter/Shutterstock

Auður Thoroddsen hefur verið dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í tengslum við leigu á fasteignum á Tenerife á Spáni. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóminn 24. september.

Auður var sakfelld fyrir að hafa dregið sér samtals rúmlega 3,3 milljónir króna sem henni höfðu verið greiddar vegna fyrirhugaðrar leigu á húsnæði á Tenerife. Brotin voru framin á árunum 2018 og 2019.

Annar ákæruliðurinn laut að viðskiptum Auðar við Kjöl, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu. Félagið hafði samið við hana um leigu á fasteign á Tenerife fyrir félagsmenn sumarið 2019. Kjölur greiddi henni samtals 22.500 evrur vegna leigunnar og þjónustu tengdrar henni.

Samkvæmt niðurstöðu dómsins greiddi Auður aðeins 5.000 evrur af þeirri fjárhæð til húseigandans. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að hluti fjármunanna fór þess í stað í persónuleg útgjöld hennar.

Þegar félagsmenn Kjalar komu til Tenerife var húsnæðið ekki til reiðu og þurfti félagið að útvega þeim aðra gistingu.

Hinn ákæruliðurinn varðaði konu sem greiddi Auði samtals 930 þúsund krónur árið 2018 vegna leigu á húsi á Tenerife sumarið eftir. Konan fékk hvorki húsið afhent né greiðsluna endurgreidda.

Auður neitaði sök og hélt því fram að hún hefði greitt húseigendum, meðal annars með reiðufé. Dómurinn taldi hins vegar að framburður hennar hefði verið ekki í samræmi við gögn málsins. Hún hefði heldur ekki lagt fram gögn sem staðfestu meintar greiðslur og var hún því dæmd sek.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að um alvarlegt trúnaðarbrot hefði verið að ræða. Á móti var tekið tillit til þess hversu langt var liðið frá brotunum og þess óhæfilega dráttar sem varð á rannsókn og meðferð málsins hjá lögreglu og ákæruvaldi.

Auður var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Þá var henni gert að greiða Kili 3.092.845 krónur auk vaxta og dráttarvaxta, auk 500 þúsund króna í málskostnað.

Auði var jafnframt gert að greiða rúmar 2,29 milljónir króna í málsvarnarlaun verjanda síns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Loka auglýsingu