1
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

2
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

3
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

9
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

10
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Til baka

Ari lifir með kæfisvefn

„Kæfisvefn er mjög alvarlegur og getur banað fólki“

Ari Edwald
Ari EdwaldAri notast við svefngrímu vegna kæfisvefns
Mynd: Golli

Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí. Sonur hans, Páll Edwald, skipar sjötta sæti á sama lista. Í viðtali við Mannlíf ræða þeir meðal annars um áhersluatriði sín, hvað þeir telja að þeir hafi til brunns að bera sem borgarfulltrúar. Þeir tala opinskátt um lífsreynslu sem hefur mótað þá.

Meðal þess sem Ari opnaði sig um í viðtalinu er kæfisvefninn sem hann glímir við. Hér má lesa þann kafla viðtalsins:

Lifir með kæfisvefn

Það vakti athygli þegar Ari mætti í viðtal hjá Berlindi Festival í Vikunni með Gísla Marteini og sagði frá kæfisvefni. Hann talar um að þau Berglind hafi opnað á umræðuna. Kæfisvefn og svefnvélar mega ekki vera feimnismál frekar en smokkurinn á sínum tíma.

„Kæfisvefn er mjög alvarlegur og getur banað fólki. Þetta er svo mikið álag á líkamann að vera alveg við það að kafna. Ég var svo heppinn að vera kallaður inn í mælingu á tímabili þegar ég hef örugglega verið í mínu versta formi en læknirinn, sem hélt utan um þetta, sagði að ég væri með svo mikinn kæfisvefn að ég hefði örugglega líka þjáðst af þessum vanda sem barn. Svo hefur kannski dregið úr því þegar ég var unglingur en þá var maður eins og tannstöngull,“ segir Ari en offita er ein algengasta orsök kæfisvefns.

„Ástæðan fyrir því að þetta uppgötvaðist hjá mér er að ég hef verið svo áhugasamur að taka þátt í öllum rannsóknum. Ef ég fæ bréf um að það sé verið að gera einhverjar rannsókn þá er ég mættur og er í þrjá tíma að láta mæla augnbotninn, lengd, þefskyn og hvaðeina.“

Ari var sendur heim með mælitæki og komu í ljós um 40 öndunarstopp á klukkutíma þegar hann var sofandi og súrefnismettunin í blóðinu var einungis um 77%. Ari sefur þess vegna með þar til gerða vél. „Það eru margir með svona vél en það eru fleiri sem þyrftu að vera með svona búnað. Þessi vandi er talinn vera mjög vangreindur,“ segir Ari og talar um að það verði að ræða um þessi mál. „Fólk verður að vita af þessu og þekkja einkennin.“

Hann segir að kæfisvefn hafi meðal annars áhrif á nýrnastarfsemina og það hafi verið fleiri klósettferðir á nóttinni og hann hafi oft vaknað sveittur. „Það er allt annað líf eftir að ég fékk vélina.

Maður er ekkert flottur með grímuna en kærastan mín vill að ég sé með þetta af því að hún vill ekki að ég taki áhættu með heilsuna. Dagurinn er líka allt öðruvísi ef ég sef samfellt og fæ hvíld. Áður sofnaði ég stundum á daginn svo sem á fyrirlestrum. Ég sagði fólki þá að ég væri með lokuð augu til að hlusta betur. Eðlilega voru þó grunsemdir uppi um að ég væri ekki að fylgjast með og einbeita mér en nú er þetta í lagi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum
Heimur

Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum

Seðlabankastjóri Ísraels er á öðru máli.
Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum
Heimur

Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Loka auglýsingu