Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

Ari Edwald er odd­viti Mið­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fara fram 16. maí. Sonur hans, Páll Edwald, skipar sjötta sæti á sama lista. Í við­tali við Mannlíf ræða þeir meðal ann­ars um áherslu­at­riði sín, hvað þeir telja að þeir hafi til brunns að bera sem borg­ar­full­trúar. Þeir tala opin­skátt um lífs­reynslu sem hefur mótað þá.

Feðgar í framboði vilja bylta borginni
Páll og Ari Lög­fræð­ing­ur­inn Páll Edwald og Ari Edwald fóru í fram­boð eftir tengsl við vara­for­mann og for­mann Mið­flokks­ins. Mynd: Golli

Ari Edwald, lög­maður og rekstr­ar­hag­fræð­ingur, segir að það hafi ekki verið hug­mynd sín að fara í fram­boð fyrir Mið­flokk­inn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fara fram 16. maí.

Aðdrag­and­inn var kunn­ings­skapur hans við for­mann flokks­ins, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, og fram­boð kær­ustu hans.

„Ég hef haft tengsl við flokk­inn á síð­ustu miss­erum. Kærasta mín, Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, fór í fram­boð fyrir Mið­flokk­inn í Alþing­is­kosn­ing­unum haustið 2024 og það bar nú líka ansi bratt að. Það var blásið til kosn­inga í októ­ber og leitað til hennar um það leyti og hún tók að sér að vera í efsta sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og varð síðan þing­maður,“ segir hann.

„Ég hef þekkt Sigmund Davíð í mörg ár og það kom nú bara ein­hvern veg­inn þannig upp í lok síð­asta árs að menn voru að setja saman lista og ég var með ábend­ingar um ein­hvern í efsta sæti. Ég stakk ekki upp á sjálfum mér og kom ekki sú hug­mynd í hug. Þegar ég var spurður: „En hvað með sjálfan þig?“ þá sagð­ist ég ætla að hugsa málið ef til mín yrði leitað. Þegar það var svo gert í lok jan­úar með ákveðn­ari hætti þurfti ég ekki mik­inn tíma til að hugsa mig um. Ég var ein­fald­lega til í þennan sprett og ég sé ekki eftir því. Mér finnst þetta hafa verið mjög skemmti­legt og það hefur gert mikið fyrir mig að taka þátt í þessu.“

„Tuðað“ í bílnum

Skoðanir á borg­ar­mál­unum höfðu blundað í Ara.

„Ég ólst upp í Reykja­vík og hef búið í borg­inni í tæp­lega hálfa öld og alltaf starfað í Reykja­vík. Mér finnst ýmis­legt í okkar góðu borg hafa farið aflaga á síð­ustu fimmtán til tutt­ugu árum þannig að ég hef verið dálítið að tuða í bílnum á ferð minni um borg­ina í gegnum tíð­ina. Þetta er þess vegna ein­stakt tæki­færi þegar maður brennur fyrir því að gera borg­ina betri þannig ég skor­ast ekki undan þess­ari áskorun.“

Sonur Ara, Páll Edwald, skipar sjötta sæti á sama lista og hann. Páll vinnur sem yfir­lög­fræð­ingur hjá Reir verk sem sér­hæfir sig í mann­virkja­gerð og fast­eigna­þróun. Tildrög þess að hann gefur kost á sér segir hann tengj­ast því að Snorri Másson, þing­maður flokks­ins, sé góður vinur sinn og að hann hafi mikið verið að hvetja Snorra til að fara í póli­tík­ina á sínum tíma og síðan hafi hann í gegnum tíð­ina verið að senda Snorra ýmsar upp­lýs­ingar í tengslum við bygg­inga­geir­ann svo sem hvað það kosti að byggja leik­skóla.

„Ég hugs­aði með mér að það væri kom­inn tími til að bjóða fram þjón­ustu mína og þekk­ingu og sjá hvort það væri spurn eftir henni. Ég nefndi það við Snorra einu sinni þegar við vorum að tala um borg­ar­mál að ég gæti séð þetta fyrir mér. Ég var síðan ekk­ert að ganga á eftir honum þar sem ég hafði engan áhuga á að fara í póli­tík ef það væri ekki eft­ir­spurn eftir því. Síðan þegar hann leit­aði til mín og kallið kom þá var ég klár og ég sé alls ekki eftir því. Ég fann strax í mag­anum eftir að ég gaf út til­kynn­ing­una að þetta væri klár­lega hár­rétt ákvörðun hjá mér. Og síðan er bara bónus að geta gert þetta með gamla,“ segir Páll og hlær og á við föður sinn.

Fólkið vilji birtu og bílastæði

Eitt er að ákveða að fara fram og annað að koma fram með áherslu­mál. Ari er fyrri til að svara því hver áherslu­málin eru.

„Ef ég legg áherslu á nokkur mik­il­væg atriði þá snúa okkar helstu áherslu­mál að skipu­lagi. Við viljum ekki ganga of langt í því að þrengja að borg­ar­búum og sam­göngu­æðum, alls ekki þétta byggð um of. Við höfum sagt að fólk vilji njóta þess að búa á Íslandi. Hér er nóg pláss og það á frekar að víkka út byggð­ina og njóta útsýnis til sjávar og fjalla. Hafa rýmra um sig,“ segir Ari. „Okkur finnst að þau stjórn­völd sem hafa stjórnað Reykja­vík raun­veru­lega í um þrjá­tíu ár þegar allt er talið séu löngu hætt að hlusta á borg­ar­búa heldur keyri áfram eigin hug­mynda­fræði sem er troðið upp á borg­ar­búa og breyt­inga kraf­ist á þeirra lífs­stíl sem fólk sé ekki sam­mála. Og þessar þving­anir snúa eins og ég sagði að skipu­lagi og gegn ofur­þétt­ingu byggðar sem teng­ist umferð­ar­æðum sem hefur verið þrengt að. Þving­an­irnar lúta líka vissu­lega að bíla­stæðum. Kannanir sýna að það sé ekki heldur verið að byggja hús­næði sem fólk vill búa í - það búa æ færri í hverri íbúð og það er eft­ir­spurn eftir minni íbúðum. En um leið vill fólk fá svalir og birtu í stað skugga­hverfa og það vill bíla­stæði nálægt heim­ili sínu. Ekkert af þessu er verið að hlusta á.“

Hann seg­ist ótt­ast flótta úr borg­inni, en bendir þó á að fer­metra­verð fast­eigna hafi hækkað mikið.

„Við leggjum líka áherslu skóla­mál og leik­skóla­mál og mál­efni aldr­aðra en þetta teng­ist í raun­inni. Ég hef til dæmis haft miklar áhyggjur af því að bæði fyr­ir­tæki og vinnu­veit­endur vilja fara úr borg­inni. Fá fyr­ir­tæki vilja til dæmis stað­setja sig vestan Hring­brautar í dag. Og það lítur líka þannig út að ef fólk eign­ast börn þá þurfi það að flytj­ast frá Reykja­vík. Borgin stefnir í að verða fyrir eldra fólk og fólk sem reiðir sig á félags­leg úrræði. Það er vegna þess að borgin hefur haft gríð­ar­leg áhrif á hækkun hús­næð­is­verðs með því að þrengja svona að. Verð á lóðum hefur verið sprengt upp en það er líka mik­ill kostn­aður sem er lagður á fólk með þátt­töku í því þegar bygg­ing­ar­að­ilar verða að selja íbúðir með miklum afslætti inn í félags­lega kerfið. Fólk er líka að kaupa og borga fyrir í íbúð­ar­verði hluta af inn­viða­upp­bygg­ingu meðal ann­ars leik­skól­anna og grunn­skól­anna þannig að það er kannski verð­mið­inn sem borgin er búin að bæta á hverja íbúð. Lítil íbúð getur kostað 70 millj­ónir króna í stað 60 millj­óna króna vegna þessa og munar um minna! Munur á fer­metra­verði í Reykja­vík og í öðrum sveit­ar­fé­lögum hérna í kring hefur einmitt auk­ist um meira en 100% síðan samn­ingur um vaxt­ar­mörk var gerður. Árið 2015 var mun­ur­inn í krónu­tölu 89.000 krónur á fer­metra en er núna kom­inn í tæpar 190.000 krónur á fer­metr­ann sem hann er dýr­ari í Reykja­vík. Og þetta er mjög greini­legt þegar maður fer yfir það að allar götur frá því að þessi samn­ingur um vaxt­ar­mörk var gerður hér árið 2015 þá sýna mán­að­ar­legar verð­bólgu­mæl­ingar að það er hús­næð­islið­ur­inn sem knýr verð­bólg­una áfram. Þetta eru gríð­ar­lega mik­il­væg áherslu­mál varð­andi þróun mann­lífs­ins í höf­uð­borg­inni.“

Algjörlega á móti borgarlínunni

Borg­ar­línan er hita­mál og fólk er með mis­jafnar skoð­anir á henni.

„Borg­ar­línan er auð­vitað hluti af þessum þreng­ingum sem við erum að tala um og þess vegna erum við algjör­lega á móti borg­ar­lín­unni. Það væri hægt að ná sam­bæri­legum árangri í því að bæta almenn­ings­sam­göngur með miklu hag­kvæm­ari hætti og án þess að raska svona mikið aðstæðum fyrir hinn miklu stærri hóp sem kýs að ferð­ast með bílum. Bíl­not­endur verða áfram um og yfir 90% af veg­far­endum þó að borg­ar­línan myndi ná mark­miðum sínum varð­andi notkun,“ segir Ari. Hann full­yrðir að borg­ar­línan eigi að fram­kalla tafir, en stuðn­ings­menn hennar segja hana geta létt álagi af umferð bif­reiða, sem Ari trúir þó ekki á.

„Það virð­ast ekki margir átta sig á því að það er einmitt mark­mið borg­ar­lín­unnar til næstu ára­tuga að umferð­ar­tafir auk­ist enn frekar fyrir þá sem velja að ferð­ast með bíl en að það dragi ekki úr þeim. Og okkur í Mið­flokknum hefur þótt skrýtið að það skipti engu máli hvað borg­ar­línan kosti þegar koma fram trú­verð­ugar til­lögur um aukin gæði almenn­ings­sam­gangna með meiri tíðni, betri vögnum og for­gangi í umferð­inni með hlið­settum for­gangsakreinum, ljósa­stýr­ingum og fleiru sem eigi að kosta kannski einn fjórða til einn þriðja af því sem áformað er með borg­ar­línu. Það er eins og fjár­hagur reyk­vískra heim­ila skipti frá­far­andi borg­ar­yf­ir­völd engu máli og sé alls ekki tek­inn með í reikn­ing­inn. Við höfum bent á að sam­kvæmt áætl­unum þar sem gert er ráð fyrir að borg­ar­línan kosti 136 millj­arða króna að það sam­svari 16,3 millj­ónum króna á hvern ein­asta not­anda í almenn­ings­sam­göngu­kerf­inu í dag. Þannig að þetta eru gríð­ar­legar fjár­hæðir sem er verið að færa minni hópi. En það er ekk­ert staldrað við og menn velta þessu ekki fyrir sér virð­ist vera.“

Borgin hækki verð íbúða

Meg­in­á­herslur Páls eru áþekkar áherslu­málum föður hans þó að blæ­brigða­munur sé á. „Auðvitað lætur maður sig flest mál varða þegar í póli­tík­ina er komið. Ég hef mesta per­sónu­lega reynslu af skipu­lags­málum. Það sem er sér­stakt við þau er að tíma­línan er svo löng frá því að deilu­skipu­lag hefst og þar til húsið er til­búið þannig að það er hægt að sjá í hvað stefnir nokkur ár fram í tím­ann. Eins og pabbi kom inn á áðan eru margir mis­mun­andi þættir sem koma frá borg­inni sem ýta undir hækkun hús­næð­is­verðs. Til dæmis hafa gatna­gerð­ar­gjöld og bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld hækkað langt umfram bygg­inga­vísi­tölu á síð­ustu árum. Og það er ekki hægt að færa rök fyrir því af hverju. Þetta er bara auka­skattur sem fer þá beint í verð­lagið.

„Eins og pabbi kom inn á áðan eru margir mis­mun­andi þættir sem koma frá borg­inni sem ýta undir hækkun hús­næð­is­verðs.“
Páll Edwald

Það er lög­bundið hlut­verk sveit­ar­fé­laga að vera með lóða­fram­boð - samt eru borg­ar­yf­ir­völd með heima­til­bú­inn lóða­skort sem ætti ekki að vera. Þau eru með kvaðir um hversu margar íbúðir af hverri stærð megi byggja. Nú er verið að tala um óseldar íbúðir. Oftast eru þetta um og yfir hund­rað fer­metra fjög­urra til fimm her­bergja íbúðir sem minni eft­ir­spurn er eftir. Það hafa margir reynt að benda á það en borgin hlustar ekki.“

Ari bendir á að kröfur um með­al­stærð íbúða séu enn að aukast og nefnir nýja hverfið á Ártúns­höfða. „Þar er búið að byggja um 500 íbúðir af um 6-8000 íbúðum sem eru fyr­ir­hug­aðar. Þar er í raun verið að hækka eða auka með­al­stærð íbúðar því að með­al­stærð í dag er kannski um 90 fer­metrar en það er verið að þrýsta því í um 100 fer­metra og verið að reikna með að það séu 2,8 íbúar í hverri íbúð. Staðan er hins vegar sú að með­al­fjöldi íbúa er í raun tveir og þeim fer fækk­andi. Eft­ir­spurnin er frekar í kringum 60 fer­metrar. Krafa er um að minni íbúðir megi ekki vera meira en 15% af íbúð­unum í blokk­inni en eft­ir­spurnin eftir minni íbúðum er bara miklu meiri. Ég hef sagt að ef við í Mið­flokknum réðum þessu myndum við strax veita bygg­ing­ar­að­ilum þær upp­lýs­ingar að þeim væri frjálst ef þeir mögu­lega gætu að breyta teikn­ingum sínum og koma betur til móts við það sem mark­að­ur­inn vill. Í ofaná­lag vilja borg­ar­yf­ir­völd nán­ast gera íbú­unum ókleift að kom­ast leiðar sinnar á bílum,“ full­yrðir Ari.

Páll talar um að mun fleiri þættir spili inn í þetta. „Það er krafa um atvinnu­hús­næði á fyrstu hæð. Nú standa um 47.000 fer­metrar atvinnu­hús­næðis auðir í Reykja­vík. Það borga alltaf ein­hverjir fyrir. Bygg­ing­ar­kostn­aður breyt­ist ekki. Hann er bara föst tala. Þannig að þetta og að selja Félags­bú­stöðum á und­ir­verði, sem er kannski 2/3 af bygg­ing­ar­kostn­aði, ýtir undir hækkun fast­eigna­verðs. Í sam­ræmi við hús­næð­is­stefnu Reykja­vík­ur­borgar hafa óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög tekið til sín um 36% af öllum nýbygg­ingum frá árinu 2015 og flestar minni íbúð­irnar fara í þetta. Félags­bú­staðir taka líka minni íbúð­irnar. Þrátt fyrir að það sé verið að byggja nýjar íbúðir þá er verið að taka það sem kallað er eftir. Þær koma aldrei inn á almenna mark­að­inn.“

Enginn vilji ganga heim úr bílastæðahúsum

Páll bendir á að í sam­tölum við borg­ar­búa heyri hann að fólk vill ekki láta neyða sig í leigu­hús­næði. „Það er ekki verið að gefa út sér­býl­i­slóðir. Það er eig­in­lega ómögu­legt að fá lóð í Reykja­vík fyrir rað­hús og hvað þá ein­býl­is­hús þrátt fyrir að það sé gert í öðrum bæj­ar­fé­lögum. Og þá þarf fólk að flytj­ast frá Reykja­vík til að fá slíkar lóðir jafn­vel þótt að það hafi kannski engan áhuga á því. Maður sér í hvað stefnir. Núna er verið að skipu­leggja Keldna­landið og þar er reiknað með bíla­stæð­is­húsum og þyrftu íbúar að ganga 5-600 metra þaðan að íbúð­ar­hús­unum. Það vill þetta eng­inn. Það er ekki ein mann­eskja að kalla eftir þessu. Þetta eru bara póli­tískar kreddur frá úreltri hug­mynda­fræði. Þannig að það er eins og teng­ingin hafi rofnað milli borg­ar­innar og íbú­anna. Það er ekki einu sinni verið að sinna grunn­þjón­ust­unni almenni­lega og allir eru sam­mála um að henni sé ábóta­vant. Við erum sam­mála sem íbúar Reykja­víkur að borga útsvar í hluti sem við erum sam­mála um að við ráðum ekki við að gera sjálf og erum til­búin að leggja í púkk og það sé gert fyrir okkur. Það er hægt að lýsa ákveðnum þáttum í borg­inni eins og hús­fé­lagi, en það er ekki verið að sinna því. Formaður hús­fé­lags­ins fer sínar eigin leiðir og hlustar ekki á neinn og er bara að halda partí í garð­inum.“

Ari talar um ofurá­herslu borg­ar­yf­ir­valda á að auka hlut félags­legs hús­næðis og nefnir í því sam­bandi fyr­ir­hug­aðar um 4.000 íbúðir í Höllum í Úlf­arsár­dal. „Það er talað um að 35% af íbúð­unum þurfi að vera félags­legt hús­næði. Þarna er verið að bregð­ast við vanda­máli, sem er búið að búa til, með plástri. Þarna var áður gert ráð fyrir 1.200 íbúðum og það skipu­lag var í sam­ræmi við þá byggð sem þegar var komin í Úlf­arsár­dal þar sem var búið að skipu­leggja um 10.000 íbúðir á svæði sem nú er að stórum hluta utan vaxt­ar­marka frá 2015. Það væri miklu eðli­legra að halda sig bara við eldra skipu­lagið og skipu­leggja 4.000 eða 10.000 íbúðir á stærra svæði og stefna að því að íbúð­ar­verð lækki, að lóðum verði úthlutað og bygg­ing­ar­að­ilar geti byggt ódýr­ara hús­næði þannig að fólk hafi efni á að koma sér upp þaki yfir höf­uðið en þurfi ekki að flytj­ast í önnur sveit­ar­fé­lög til þess að gera það. Kannanir sýna að 91% af fólki vill eign­ast eigið hús­næði en töl­fræðin sýnir líka að á meðan um 80% af minni kyn­slóð eru í eigin hús­næði þá eru frekar litlar líkur á því að fólk sem er 18-20 ára í dag geti ráðið við það í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Stefnu­breyt­ingin, sem við myndum vilja gera, væri að brjóta nýtt land undir íbúðir sem unnt væri að byggja með ódýr­ari hætti og sem fólk gæti haft efni á að eign­ast. Það á ekki að knýja upp hús­næð­is­verðið þannig að yfir 10 millj­ónir á hverja með­al­í­búð séu orðnar ein­hver nýr kostn­aður frá Reykja­vík­ur­borg en svo eigi að bregð­ast við þeim til­búna vanda með því að 35% af fólki sé í félags­legu hús­næði. Þarna erum við á rangri leið og þennan kúrs þarf að rétta,“ segir Ari.

Geldingnes og Spöngin

Feðgarnir telja báðir að göng væru betri kostur en brú þegar kæmi að fyrsta legg Sunda­brautar sem lægi frá Sæbraut og yfir í Grar­far­vog, en Vega­gerðin hefur mælt með brú vegna þess hversu djúpt þyrfti að fara með göngin.

Áætlað er að Sunda­braut liggi yfir Geld­inga­nes sem er mikil nátt­úrupara­dís og vin­sælt úti­vist­ar­svæði, meðal ann­ars á meðal sjó­sunds­fólks. Þá er fyr­ir­huguð byggð, en borg­ar­stjórn sam­þykkti í fyrra að hún komi í kjöl­far Sunda­brautar. Ari segir að fyrir utan að opna þurfi fyrir bygg­inga­fram­kvæmdir í Úlf­arsár­dal ætti að gera slíkt hið sama á Geld­inga­nesi sem og víðar á þessu svæði og upp á Kjal­ar­nes. Hann tekur fram að hugsa þurfi jafn­framt um að hluti þess yrði áfram úti­vist­ar­svæði.

Graf­ar­vogs­búar eru ekki allir sáttir við fyr­ir­hug­aða þétt­ingu byggðar í hverf­inu sem Páll segir að sé gott dæmi um vel heppnað hverfi í núver­andi ástandi en þar bjó fjöl­skyldan um ára­bil og þar ólst hann upp.

Gert er meðal ann­ars ráð fyrir upp­bygg­ingu í Spöng­inni þar sem helstu versl­anir eru í Graf­ar­vogi og byggja þar fjöl­býl­is­hús meðal ann­ars þar sem nú eru bíla­stæði en bíla­stæði yrðu þá í bíla­kjall­ara. Ekki eru nærri allir Graf­ar­vogs­búar sáttir við þá fyr­ir­hug­uðu þétt­ingu sem og það rask og ónæði sem fylgja myndi því jafn­vel um ára­bil svo sem fyrir íbúa sem þar búa næst.

„Þetta er hluti af þeirri ofur­þétt­ingu sem við erum algjör­lega á móti,“ segir Ari. „Ég var nýlega uppi í Spöng og það var fullt af bílum á bíl­stæð­unum. Þau voru í mjög mik­illi notkun.“ Stræt­is­vagnar aka þangað og bíða og talar Ari um að ef menn hugsi sér að fólk sem ekur utan af landi geti nýtt sér almenn­inga­sam­göngur í borg­inni þá verði það að geta lagt sínum bíl ein­hvers staðar. „Það er mjög lítið svig­rúm í dag að leggja bíl við Spöngina,“ segir Ari en eins og fyrr segir er hug­myndin að byggja nokkur fjöl­býl­is­hús á svæð­inu þar sem hluti bíla­stæð­anna er.

Með þykkan skráp

Feðgarnir eru búnir að segja frá áherslu­málum sínum en hvað hafa þeir sem per­sónur fram að færa? Hvað með styrk­leika og sjálfs­traust fyrir utan að það getur verið álag að vera borg­ar­full­trúi og opin­ber per­sóna.

„Ég tel mig vera með frekar þykkan skráp,“ segir Páll.

„Hann skortir ekki sjálfs­traust,“ segir faðir hans, „en hann hefur líka sterkan mennt­un­ar­legan bak­grunn. Hann hefur lokið laga­námi og er með MBA-gráðu auk þess að vera með próf í verð­bréfa­miðlun. Hann hefur alltaf verið seigur að bjarga sér. Hann fór að vinna í álver­inu á Reyð­ar­firði sum­arið 2017 og bjó þá á Egils­stöðum og tók sig til og stofn­aði fyrst pöbb og svo pítsu­stað. Fáeinum árum síðar seldi hann sig út úr þeim reksri og keypti íbúð niðri á Kirkju­sandi. Palli hefur alltaf verið fram­taks­samur og dug­legur og líka dug­legur í skól­anum.“

„Ég trúi því að maður eigi að láta verkin tala,“ segir Páll. „Og ég hef reynt að sýna það núna á sam­fé­lags­miðlum,“ segir hann og nær í sím­ann sinn og sýnir upp­töku á TikTok þar sem hann tók sig nýlega til að lag­aði holu og þreif litlu tjörn­ina fyrir framan Ráðhúsið. „Hún var orðin eins og drullu­pollur. Sumt ruslið reynd­ist vera stöðu­mæla­sektir frá 2023 þannig að það var ekki búið að þrífa þetta í nokkur ár. Það sem truflar mig er að borg­ar­full­trúar ganga þarna fram hjá á hverjum degi til að fara í vinn­una, horfa á allt ruslið og það truflar þá ekki.“

Hvað með álag - skot og nettröll? „Þá væri maður all­vega ekki í Mið­flokknum,“ segir Páll og hlær og seg­ist ekki vera hræddur við ljót orð. „Maður verður að ráða við þetta ef maður ætlar að vera í Mið­flokknum. Það er vel sótt að honum af nettröll­unum.“

Ari er ýmsu vanur.

„Ég hef verið í áber­andi störfum frá því árið 1991 þegar ég varð aðstoð­ar­maður dóms- og kirkju­mála­ráð­herra og það má segja að fer­il­inn hafi verið tölu­vert áber­andi síðan. Kannski var mest áber­andi starfið þegar ég var fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Kjara­deilur og fleira tók yfir frétt­irnar jafn­vel vikum saman þannig að maður er ýmsu vanur. Að vísu voru sam­fé­lags­miðlar þá ekki komnir til sög­unnar þannig að maður hefur þurft að venj­ast þeim en það haggar mér ekki mikið. Orð­ljót­ustu nettröllin eru ótrú­lega lít­ill hópur og ég held að þeir sem setja mesta óhroð­ann fram séu nokkrir tugir. Ég held að meiri­hluti fólks horfi í gegnum þessa vit­leysu alla og vilji frekar almenni­lega og heið­ar­lega umræðu.“

Ólst upp í blokk við Álfheima

Ari ólst upp í blokk við Álfheima, „í þriðju blokk­inni frá Glæsibæ“. Faðir hans var lyfja­fræð­ingur og veitti Lyfja­verslun rík­is­ins for­stöðu, kallað lyf­sölu­stjóri rík­is­ins á þeim tíma. Móðir hans var heima­vinn­andi þar til systk­inin voru komin í gagn­fræða­skóla. Hann segir að bad­minton hafi orðið sín íþrótt. Hann fór líka á skíði, hjólaði á sumrin, meðal ann­ars upp að Ellið­vatni til að veiða, og svo þegar hann varð eldri fór hann að spila golf.

Hann gekk í Voga­skóla og Lang­holts­skóla áður en hann hóf nám við Mennta­skól­ann við Sund. Hann fór síðan í lög­fræði og loks í rekstr­ar­hag­fræði í Banda­ríkj­unum.

„Ég var í stúd­entapóli­tík á háskóla­ár­unum, fyrir Umbóta­sinn­aða stúd­enta. Ég var vara­for­maður Stúd­enta­ráðs og rit­stjóri Stúd­enta­blaðs­ins og ég var líka mikið í félags­líf­inu í laga­deild - var í rit­nefnd Úlfljóts og mikið í kringum Orator.“ Ari seg­ist ekki hafa tekið þátt í skipu­lögðu félags­lífi á mennta­skóla­ár­unum þar sem bad­minton átti hug hans og hann æfði mikið á þeim árum. Þá vann hann tals­vert með skóla, meðal ann­ars að við­gerðum á bad­mint­on­spöðum og segir að sú vinna hafi einnig haldið sér gang­andi fjár­hags­lega á háskóla­ár­unum.

Ari á þrjú börn með fyrri eig­in­konu sinni, Þórunni Páls­dóttur, og eina dóttur með seinni eig­in­konu sinni, Gyðu Dan Johansen, og eru þau á aldr­inum 13-34 ára.

Dýrkar Grafarvoginn

Eins og þegar hefur komið fram ólst Páll upp í Graf­ar­vogi, nánar til­tekið í Folda­hverfi. „Ég dýrka Graf­ar­vog­inn. Það var mjög skemmti­legt að vera þar,“ segir Páll sem seg­ist alltaf hafa verið í fót­bolta og svo lærði hann á píanó í níu ár í Tón­list­ar­skóla Graf­ar­vogs auk þess að byrja ungur í golfi.

„Hann fór að hafa meiri áhuga á að skemmta sér,“
Ari Edwald

„Mér sem for­eldri fannst svo­lítið miður að þegar Palli fór í mennta­skóla að hann fór að hafa meiri áhuga á að skemmta sér,“ segir Ari. „Um hríð vék það að vera með fókus á fót­bolt­anum eða taka píanóið alvar­lega eða golfið - og meira að segja námið sjálft. En svo þegar leið á mennta­skól­ann kom Palli til baka sem mjög metn­að­ar­fullur náms­maður og sá ásetn­ingur fylgdi honum í háskól­ann. Þannig sé ég það.“

„Maður þarf nátt­úr­lega að sinna félags­líf­inu líka,“ segir Páll. „Ég hef alltaf haft gaman af fólki og að vera með fólki. Það sem ég elskaði við mennta­skól­ann var einmitt hvað það var mikið félags­líf. Að æfa fót­bolta sautján ára fylgdu svo strangar reglur og það var eitt­hvað sem ég hafði ekki áhuga á þótt ég spili fót­bolta enn í dag. Það er gert grín að því að ég sé í flestum bumbu­boltum lands­ins og mér finnst það mjög skemmti­legt. En ég vissi að þetta væri ekki að fara að verða fer­il­inn minn. Ég var ekki að fara að verða atvinnu­maður. Þá þurfti maður bara að velja og hafna. Maður hefur bara X mik­inn tíma.“

„Ég hef aldrei séð það þannig að ég væri með pressu á Palla að hann myndi þurfa að sjá fyrir okkur í fram­tíð­inni sem atvinnu­maður í knatt­spyrnu þannig að það var engin þannig pressa frá mér,“ segir Ari. „En það má kannski segja samt að sem for­eldri fannst mér félags­lífið og eitt­hvað djamm skipa óþarf­lega mik­inn sess á mennta­skóla­ár­unum. Það má kannski sjóða þessa athuga­semd niður í það að ég hafi haft pínu­litlar áhyggjur af því að Palli væri of líkur mér. Ég hefði sjálfur viljað læra á hljóð­færi sem ungur drengur en ég byrj­aði á því fyrir nokkrum árum. Ég byrj­aði að læra á gítar en ég fékk í jóla­gjöf frá systur hans Palla og tengda­dóttur minni, kon­unni hennar, gít­ar­nám fyrir nokkrum árum þannig að ég keypti gítar og fór að sækja tíma. Nú hefur það legið niðri um hríð en ég mun taka það upp aftur því það er mikil heilun og mjög gott að sitja og glamra.“

Páll seg­ist vera mjög þakk­látur fyrir að hafa verið í tón­list­ar­námi og golfi. „Maður var ekki kom­inn með næga innri ró fyrir golf þegar maður var svona ungur en ég byggi á því í dag. Þú varst dug­legur að koma mér inn í veiði,“ segir hann og beinir orðum sínum til föður síns. „Sér­stak­lega þegar ég horfi til baka er það mjög mik­il­vægt og ég er mjög þak­látur fyrir það. Þegar maður fór að veiða án pabba þurfti maður að hnýta allt sjálfur og horfa á YouTube-mynd­band,“ segir Páll og hlær og á við að hann hafi ekki kunnað að hnýta.

Páll fór í lög­fræði að stúd­ens­prófi loknu en eldri systir hans er einnig lög­fræð­ingur eins og faðir þeirra. Hann lauk meist­ar­ar­námi í skipti­námi við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla.

Páll hefur í fjögur ár unnið hjá Reir verk og er þar yfir­lög­fræð­ingur. Hann býr ásamt unn­ustu sinni, Selmu Eir Hilm­ars­dóttur í miðbæ Reykja­víkur og þau eru nýlega trú­lofuð.

Leggur áherslu á valddreifingu

Eins og fram hefur komið eru feðgarnir vel mennt­aðir og með reynslu úr atvinnu­líf­inu en auð­vitað er Ari með miklu meiri reynslu. Á hvað hefur hann lagt áherslu sem stjórn­andi?

„Ég held að ég leggi áherslu á fag­lega stjórn­un­ar­hætti og vald­dreif­ingu. Það hefur alltaf verið þannig. Ég vann fyrst hjá hinu opin­bera í átta ár sem aðstoð­ar­maður og nýtti ekki það sem ég hafði verið að læra bein­línis í stjórnun. Síðan fór ég í blaða­mennsku í sex til átta mán­uði þangað til ég var ráð­inn fyrsti fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.“

Ari varð síðar for­stjóri 365, for­vera Sýnar, sem var langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins á þeim tíma. Hann segir það hafa verið flókið fyr­ir­tæki en þar voru margar ólíkar rekstr­ar­ein­ingar. „Það var fyrsta alvöru stjórn­un­ar­starfið mitt í einka­geir­anum. Að stýra 365 var mjög krefj­andi en um leið ein­stak­lega skemmti­legt og þar vann ég í tæp níu ár.“

Ari varð eftir það for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar í fimm ár en síðan ein­beitti hann sér að útflutn­ingi á Ísey-skyri. Í tíð Ara sem for­stjóra MS árið 2016 var félagið sektað af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um 480 millj­ónir króna fyrir að „mis­nota mark­aðs­ráð­andi stöðu“, en Ari fór í hart og sagði á þeim tíma að fram­ganga eft­ir­lits­ins væri „lít­il­mann­leg“. Sektin var síðan lækkuð af áfrýj­un­ar­nefnd í 40 millj­ónir króna. Málið fór í gegnum dóms­kerfið, en á end­anum tap­aði MS mál­inu fyrir Hæsta­rétti og var skyldað til að greiða 440 millj­ónir króna í sekt.

Ari seg­ist ein­beita sér að ramm­anum.

„Nálgun mín hefur alltaf verið sú að skapa teymi og búa til umgjörð. Hjá 365 var verið að búa til sjón­varps­þætti, það var verið að búa til fleiri en eitt blað, útvarp og fleira. Maður var að teikna upp skipu­lagið sem studdi við fólk til að það næði árangri. Það þurfti skipu­lag, ferla og boð­leiðir. Það þurfti fjár­magn og menn þurftu að vita hvar þeir stóðu. Og ég leyfi mér að líta svo á að þessi nálgun hafi lagt grunn að mjög góðum árangri þessa fyr­ir­tækis.“

Þessa reynslu alla og þekk­ingu telur Ari að hann geti nýtt í borg­ar­mál­unum og seg­ist hann vona að meðal kjós­enda sé frjór akur fyrir reynslu og þekk­ingu á þessu sviði.

„Varðandi það að bæta þjón­ustu eða árangur þá get ég nefnt áherslur okkar varð­andi til dæmis grunn­skól­ann. Talað er um að búið sé að ganga of langt varð­andi það sem er kallað „skóli án aðgrein­ingar“ en við hjá Mið­flokknum segjum að það þurfi að sníða námið betur að hverjum og einum nem­anda. Þeir hafa mis­jafnar þarfir en það er verið að leggja mikið á skól­ann að vera nokk­urs konar félags­mála­stofnun. Það er ekki þannig að allt það sama henti öllum. Þarna tel ég að sú nálgun henti vel að vald­efla skól­ann; draga úr mið­lægri stýr­ingu en leggja línur og að þeir sem eru næstir vett­vangi hafi meira svig­rúm til þess að vinna úr áskor­unum og kom­ast að nið­ur­stöðu. Og sama gildir um önnur svið. Ég hef ekki sér­fræði­þekk­ingu á hverju og einu sem unnið er í hjá borg­inni en maður kemur kannski að með þá þekk­ingu og reynslu að það þurfi að vera rammi, það þurfi að vera rekstr­ar­legur agi og fólk þurfi að vita hvar það stendur og hvaða heim­ildir það hefur til að taka ákvarð­anir og vinna úr málum. Og vald­dreif­ing er best. Það er best að færa ákvarð­anir sem næst við­fangs­efn­unum og draga úr milli­lögum í stjórn­sýslu og hindra að allt þurfi að drag­ast í ein­hverja flösku­hálsa.“

Átta ára í umræðum um hlutabréf

Páll segir að frá því hann man eftir sér hafi hann verið hel­tek­inn af fast­eignum. „Þú manst kannski hvað ég var gam­all þegar ég beið á mánu­dögum eftir fast­eigna­blað­inu?“ segir hann og beinir orðum sínum að föður sínum.

„Ég man það ekki,“ segir Ari, „en ég man að árið 2005, þegar þú hefur verið átta ára, vorum við í sum­ar­bú­stað með fleira fólki. Þar voru meðal ann­ars kaup­sýslu­menn sem voru miklu meira á kafi í þeim hlutum heldur en ég sem var þarna fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins og var í þjóð­hags­legum pæl­ingum gagn­vart atvinnu­líf­inu. Þarna varst þú á bólakafi í sam­tali við full­orðna menn um hluta­bréf.“

Páll hlær.

„Ég man eftir þessu,“ segir hann. „Þetta var í Skorra­dal. Ég var gagn­tek­inn af hluta­bréfum fram að hruni,“ segir Páll, „en þá fór ég að pæla í ein­hverju öðru. Þá voru það fast­eignir sem tóku við.“ Hann telur að hluta af þeim áhuga teng­ist því að móð­ur­afi hans var einn af stofn­endum Ístaks og var for­stjóri þar í rúm þrjá­tíu ár.

En hvað með reynslu hans og hvernig myndi hún geta nýst í borg­ar­mál­unum?

„Ég held að það sé tíma­bært að ein­hver í borg­ar­stjórn viti hvað kostar að byggja, hver raun­veru­legur bygg­ing­ar­kostn­aður er.“

„Það er metn­að­ar­fullt mark­mið hjá okkur að ná Palla inn,“ segir faðir hans, „því að hann er í 6. sæti en skoð­ana­kann­anir hafa verið að spá okkur þremur full­trúum. Okkur finnst við hafa með­byr þannig að við erum bjart­sýn að það sé ekki loka­svar og það geti enn bæst við. En það þarf að taka vel á því.“

„Ég missi alla­vega ekki trúna, sjáum hvað kemur upp úr kjör­köss­unum,“ segir Páll.

„Ég hef fulla trú á því að það sé innan þess mögu­lega,“ segir Ari.

Ekkert sjálfgefið

Lífið er ekki alltaf dans á rósum en mis­jafnt er hve öld­urnar eru háar í lífs­ins ólgu­sjó. Páll er ungur og honum hefur vegnað vel en er ein­hver lífs­reynsla sem hefur haft áhrif á hann og jafn­vel breytt lífs­sýn hans?

„Þegar ég horfi til baka og ber mig saman við marga í kringum mig þá stendur upp úr hvað ég hef fengið að vera sjálf­stæður frá því ég man eftir mér. Það er sama hvað ég var gam­all - ég fékk alltaf svo mikið traust frá for­eldrum mínum svo sem varð­andi hvenær ég myndi skila mér heim. Ég var ekki njörv­aður niður í fastan ramma. Hvort sem ég var tíu ára eða tví­tugur hef ég alltaf verið mjög sjálf­stæður, tel ég.“

Hvað með lífs­reynslu eða erf­ið­leika? Hann segir að það teng­ist því þegar hann hefur misst nákomna og vin sem svipti sig lífi. Hann nefnir líka ungt fólk í kringum sig sem hann þekkti ekki vel en fór of snemma.

Þetta hefur haft áhrif á Pál sem seg­ist vera með­vit­aður um hvað lífið er stutt og að ekk­ert er sjálf­sagt. „Það á að nýta tím­ann sem maður hefur og gera allt strax sem maður getur og ekki velta sér upp úr því hvað öðrum finnst. Það hafa allir milljón skoð­anir.“

Það er víða álag á ungu fólki og segir Páll að það sé alltaf hægt að gera betur. „Píeta sam­tökin hafa unnið mjög gott starf og Bergið.“ Hann nefnir hvað skól­inn og íþrótta­starf sé gagn­legt sem for­vörn og að „gera það sem við getum“. „Ég hef tekið fyrir opn­un­ar­tíma í sundi um helgar,“ segir hann en sund­laugum er nú lokað fyrr á kvöldin og um helgar. „Þótt þetta sé ein besta for­vörnin þá er sund líka gott fyrir þá sem eru ein­mana. Þeir fara í sund, hitta fólk og geta tuðað í pott­inum.“

Ekki eins í pottinn búið

Ari seg­ist vilja meina að heilt yfir hafi hann fyrst og fremst notið mik­illar vel­gengni í líf­inu, fengið mörg tæki­færi og átt gott fjöl­skyldu­líf þrátt fyrir tvo hjóna­skiln­aði. „Það voru ekki átök í kringum þá. Fyrri skiln­að­ur­inn var eftir 29 ára sam­band,“ segir hann en þau Þórunn voru 16 og 17 ára þegar þau kynnt­ust. „Hlut­irnir ein­fald­lega breyt­ast. Í dag er mjög gott sam­komu­lag og sam­starf við báða fyrri maka mína og allt fólk. Góður vinur minn orð­aði það nýlega þannig að hann væri svo ánægður með að það væri allt gott í kringum Ara. Ég hef alltaf lagt áherslu á að hlut­irnir séu á eins lygnum sjó og hægt er. En það getur eng­inn reiknað með því og ætl­ast til þess að lífið sé alltaf bara dans á rósum og það hefur ekk­ert verið hjá mér heldur. Ég hef meðal ann­ars upp­lifað það að hafa verið bor­inn röngum sökum sem varð um hríð að tölu­vert mik­illi aur­skriðu lyga,“ segir Ari og á þarna við sakir sem hann og nokkrir vinir hans voru bornir fyrir rúmum fjórum árum vegna meintra atvika ári áður. Þeir kærðu síðar við­kom­andi fyrir til­raun til fjár­kúg­unar og hót­anir sem var svarað með kæru um kyn­ferð­is­brot. Rannsókn þeirra mála var hætt fyrir tæpum þremur árum.

„Lífið varð erfitt í kjöl­far ásakan­anna.“
Ari Edwald

„Þetta var áfall og lífið varð erfitt í kjöl­far ásakan­anna. En ég átta mig líka á því að svona högg eru engan veg­inn sam­bæri­leg við að ást­vinur grein­ist með lífs­hættu­legan sjúk­dóm.

Til að styrkja mig hef ég bæði leitað ráð­gjafar og hlustað á ýmsa fyr­ir­lestra. Svo kemur kannski eitt sam­tal sem hefur meiri áhrif en annað og maður áttar sig kannski á því seinna að eitt­hvað kveikti innra með manni betri hugs­un­ar­feril og hafði þegar upp var staðið mikið gagn. Þannig að það er mjög mik­il­vægt að reyna að stjórna sínu hugs­unum og hafa trú á því að það komi dagur eftir þennan dag og helga sig spenn­andi verk­efnum.

Það er almennt ekk­ert eitt sem mótar mann. Maður lærir smátt og smátt. Það verða allir fyrir áföllum og það eiga allir tap­leiki og maður þarf bara að rífa sig upp og horfa til fram­tíðar. Hrista af sér erf­ið­leika. Ef það er eitt­hvað eitt sem maður hefur lært þá er það mik­il­vægi rósemi hug­ans. Því það mun áfram ganga stundum betur og stundum verr. Reynslan kennir manni að halda haus í gegnum hvort tveggja og heldur ekki að missa sig þó vel gangi um hríð.

Mótlæti í líf­inu hefur breytt mér að því leyt­inu að ég er þroskaðri. Ég er var­ari um mig og ég geng aðeins hægar um allar dyr, gleð­innar dyr jafnt sem aðrar. Ég er reynsl­unni rík­ari að því leyti. En ég má samt ekki hætta að vera ég sjálfur. Við höfum verið að tala um þetta fram­boð. Ég hefði ekk­ert verið að bjóða mig fram árið 2022 og 2023. En ég er til­bú­inn í dag þannig að ég tel mig vera búinn að læra og styrkj­ast.“

Lifir með kæfisvefn

Það vakti athygli þegar Ari mætti í við­tal hjá Berlindi Festival í Vikunni með Gísla Marteini og sagði frá kæfisvefni. Hann talar um að þau Berglind hafi opnað á umræð­una. Kæfisvefn og svefn­vélar mega ekki vera feimn­is­mál frekar en smokk­ur­inn á sínum tíma.

„Kæfisvefn er mjög alvar­legur og getur banað fólki. Þetta er svo mikið álag á lík­amann að vera alveg við það að kafna. Ég var svo hepp­inn að vera kall­aður inn í mæl­ingu á tíma­bili þegar ég hef örugg­lega verið í mínu versta formi en lækn­ir­inn, sem hélt utan um þetta, sagði að ég væri með svo mik­inn kæfisvefn að ég hefði örugg­lega líka þjáðst af þessum vanda sem barn. Svo hefur kannski dregið úr því þegar ég var ung­lingur en þá var maður eins og tann­stöng­ull,“ segir Ari en offita er ein algeng­asta orsök kæfisvefns.

„Ástæðan fyrir því að þetta upp­götv­að­ist hjá mér er að ég hef verið svo áhuga­samur að taka þátt í öllum rann­sóknum. Ef ég fæ bréf um að það sé verið að gera ein­hverjar rann­sókn þá er ég mættur og er í þrjá tíma að láta mæla augn­botn­inn, lengd, þef­skyn og hvað­eina.“

Ari var sendur heim með mæli­tæki og komu í ljós um 40 önd­un­ar­stopp á klukku­tíma þegar hann var sof­andi og súr­efn­is­mett­unin í blóð­inu var ein­ungis um 77%. Ari sefur þess vegna með þar til gerða vél. „Það eru margir með svona vél en það eru fleiri sem þyrftu að vera með svona búnað. Þessi vandi er tal­inn vera mjög van­greindur,“ segir Ari og talar um að það verði að ræða um þessi mál. „Fólk verður að vita af þessu og þekkja ein­kennin.“

Hann segir að kæfisvefn hafi meðal ann­ars áhrif á nýrna­starf­sem­ina og það hafi verið fleiri kló­sett­ferðir á nótt­inni og hann hafi oft vaknað sveittur. „Það er allt annað líf eftir að ég fékk vél­ina.

Maður er ekk­ert flottur með grímuna en kærastan mín vill að ég sé með þetta af því að hún vill ekki að ég taki áhættu með heils­una. Dagurinn er líka allt öðru­vísi ef ég sef sam­fellt og fæ hvíld. Áður sofn­aði ég stundum á dag­inn svo sem á fyr­ir­lestrum. Ég sagði fólki þá að ég væri með lokuð augu til að hlusta betur. Eðlilega voru þó grun­semdir uppi um að ég væri ekki að fylgj­ast með og ein­beita mér en nú er þetta í lagi.“

Ari stefnir því glað­beittur og glað­vak­andi á borg­ar­stjórn fyrir Mið­flokk­inn, sem mæld­ist með 10% fylgi í síð­ustu könnun Maskínu, svipað og Viðreisn og Vor til Vinstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum