1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

5
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Til baka

Bjarni Ben sagði ósatt um vanhæfi

Tveimur vikum áður hafði hann lýst sig vanhæfan

Bjarni Benediktsson,
Bjarni Benediktsson
Mynd: Stjórnarráðið

Nýr ársreikningur Hvals hf. hefur vakið athygli þar sem fram kemur að Guðrún Sveinsdóttir, föðursystir Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi matvælaráðherra og nú framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sé á meðal stærstu hluthafa félagsins með 1,78 prósenta eignarhlut og á óbreyttan fjölda bréf frá fyrra ári.

Heimildin greinir frá málinu.

Málið tengist ákvörðun Bjarna í desember 2024 um að veita Hval hf. fimm ára leyfi til veiða á langreyðum. Tveimur vikum áður hafði hann lýst sig vanhæfan til að fjalla um umsókn félagsins þar sem venslamaður hans ætti sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta af niðurstöðu málsins. Nokkrum dögum eftir alþingiskosningarnar 2024 taldi hann hins vegar að forsendur vanhæfis væru ekki lengur fyrir hendi og afgreiddi leyfið.

Í svari við fyrirspurnum Heimildarinnar segir Bjarni að hann hafi metið hæfi sitt vegna þess að foreldrar hans hefðu átt um eitt prósent hlutafjár í Hval hf. Þegar honum hafi orðið ljóst að sá hlutur hefði verið seldur hafi mögulegar vanhæfisástæður fallið niður. Hann segir enga aðra sér nákomna í skilningi stjórnsýsluréttar hafa átt hagsmuni sem skiptu máli í málinu.

Í stjórnsýslulögum segir hins vegar: „Starfsmaður eða nefndarmaður er vanhæfur til meðferðar máls [... ef] hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.“

Eins og fram hefur komið er föðursystir Bjarna hluthafi í Hval og skyldleiki þeirra fellur því undir greinina. Bjarni hefur ítrekað neitað fyrir í fjölmiðlum að fjölskylda hans tengist félaginu.

„Ég og náskyldir ættingjar, foreldrar mínir, systkini og börn eigum enga hluti í Hval hf.,“ sagði Bjarni, þá forsætisráðherra, við Mannlíf í nóvember 2024 og sagði svipað við Vísi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027
Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan
Heimur

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju
Heimur

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart
Heimur

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Innlent

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027
„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Loka auglýsingu