Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Bjarni neitar því að vera vanhæfur: „Eigum enga hluti í Hval hf“

Bjarni Benediktsson,
Bjarni Bene­dikts­son,

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og sitj­andi mat­væla­ráð­herra, telur sig vera hæfan að veita Hval hf. leyfi til hval­veiða.

Það hefur gustað mikið um Bjarna Bene­dikts­son síðan í gær en þá birti Heim­ildin leyni­upp­tökur af Gunnari Bergmann Jónssyni en hann er sonur Jóns Gunn­ars­sonar sem var nýlega skip­aður aðstoð­ar­maður Bjarna í sjáv­ar­út­vegs­málum. Á upp­tök­unum má heyra Gunnar meðal ann­ars tala um van­hæfni Bjarna til að veita leyfi fyrir hval­veiðum vegna fjöl­skyldu­á­stæðna án þess að fara nánar út í þau mál. Það yrði því Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sem þyrfti að skrifa undir leyfið. Þá sagði Gunnar á upp­tök­unni að faðir sinn hafi verið settur sér­stak­lega í ráðu­neytið til að tryggja að Hvalur hf. fengi leyfið fyrir kom­andi alþing­kosn­ingar.

Eins og áður segir þá liggur ekki nákvæm­lega fyrir í hverju meint van­hæfni Bjarna felst en sam­kvæmt frétt sem birt­ist í Stund­inni árið 2019 áttu for­eldrar Bjarna 2,3% hlut í Hval hf. á þeim tíma. Mannlíf sendi Bjarna fyr­ir­spurn um málið fyrr í dag.

Umsóknir eru ennþá í ferli

Í svari Bjarna til Mannlífs tekur hann skýrt fram að hvorki hann né náskyldir ætt­ingjar eigi hlut í fyr­ir­tæk­inu í dag.

„Ég og náskyldir ætt­ingjar, for­eldrar mínir, systk­ini og börn eigum enga hluti í Hval hf,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

„Já, það er ekk­ert sem gefur til­efni til að ætla að ég sé ekki hæfur til þess,“ sagði Bjarni um hvort hann væri hæfur til þess að veita Hval hf leyfi. „Hins vegar á eftir að koma í ljós hve langan tíma lög­bundið umsagn­ar­ferli tekur m.t.t. þess hvort yfir höfuð verði um ein­hverja ákvarð­ana­töku að ræða á þessu kjör­tíma­bili.“

„Þær umsóknir eru til hefð­bund­innar stjórn­sýslu­legrar með­ferðar í ráðu­neyt­inu. Lögum sam­kvæmt fer málið m.a. til umsagnar hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun,“ sagði Bjarni svo um stöðu þeirra umsókna sem hafa verið lagðar inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Maðurinn segist hafa verið beittur handrukkun og krafinn um að flytja fíkniefni til Íslands. Faðir hans fylgdi honum af ótta við hefndaraðgerðir.
Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Heimur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innlent

Stræt­is­vagn ók á litla rútu

Áreksturinn varð þegar vagninn beygði af Snorrabraut inn á Hverfisgötu í morgun. Nokkrar tafir urðu á umferð.

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu