
Einn gisti fangageymslu lögreglu í nótt36 mál voru skráð í kerfi lögreglu.
Mynd: Víkingur
Lögregla sinnti nokkrum verkefnum á svæðinu í nótt og í gærkvöldi. Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í öðru tilvikinu var ökumaður einnig grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og var sviptur ökuréttindum. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Þá barst lögreglu tilkynning um innbrot á vinnusvæði. Leitað var að geranda en viðkomandi fannst ekki.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu eftir að ekið hafði verið á barn á hjóli. Barnið reyndist óslasað.
Að auki barst tilkynning um tónlistarhávaða og fór lögregla á vettvang til að sinna málinu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment