
KeflavíkurflugvöllurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Pedro Miguel De Melo Andrade hefur verið dæmdur af Hérðasdómi Reykjaness fyrir fíkniefnabrot.
Hann var ákærður fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa föstudaginn 6. febrúar 2026, staðið að innflutningi á samtals 386,36 grömmum af kókaíni með styrkleika 81-82%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi frá Lisbon, Portúgal, til Keflavíkurflugvallar, falin innvortis.
Andrade játaði brot sitt en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsivert athæfi á Íslandi.
Hann var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi og þarf að greiða 1.603.748 krónur í sakarkostnað.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment