Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands fyrir tæpu ári síðan og þykir hún hafa staðið sig vel.
Höllu forseta leiðist ekki að fara í sund og svo heppilega vill til að ein flottasta sundlaug landsins er staðsett á Álftanesi aðeins örskammt frá Bessastöðum og forsetinn nýtir sér laugina og nýtur sín í henni.

Það sama gerði forveri hennar í starfi, Guðni Th. Jóhannesson á meðan á átta ára forsetatíð hans stóð.
En það er munur á sundferðum Höllu og Guðna þótt sama laugin sé notuð og án efa hin frábæra og stóra rennibraut við laugina er að finna - og munurinn er sá að Halla er með lífverði en þá var Guðni aldrei með í sundi að minnsta kosti.

Hafa fastagestir í sundlauginni á Álftanesi tekið eftir því að tveir lífverðir fylgja Höllu eftir; karlmaður með vökult augnaráði og kvenkynslífvörður sem vappar um og fylgist grannt með öllu, líkt og segir á vefsíðunni eirikurjonsson.is.
Segir einnig að fastagestirnir telji þettavera án nokkurs vafa nýlunda hjá Höllu og forsetaembættinu:

„Þetta er nýlunda, en kannski er þetta nauðsynlegt eins og ástandið er í heiminum,“ sagði einn fastagestanna og tekið er fram að aðrir gestir hafi kinkað kolli í pottinum eftir að þessi orð voru látin flakka.
Komment