1
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

2
Minning

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá

3
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

4
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

5
Innlent

Réðst harkalega á barnsmóður sína

6
Heimur

Óður hestur drap ungmenni í Central Park

7
Heimur

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum

8
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

9
Innlent

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka

10
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

Til baka

Sunneva tapaði 12 milljónum vegna svikahrapps á Tinder

Ætlar að koma sterkari til baka út úr áfallinu

TInder
Sunneva hitti manninn aldreiTreysti honum fullkomlega.
Mynd: Tinder

Sunneva Birgisdóttir opnar sig í nýlegu og ítarlegu viðtali við Vikuna en þar ræðir hún meðal annars um að hafa verið svikin um 12 milljónir af manni sem hún kynntist í gegnum Tinder en hún telur að hún hafi ekki verið fyrsta fórnarlamb mannsins.

„Hann sagði mér frá áhugamáli sínu, sem er „crypto“ eða rafmyntafjárfestingar. Ég kippti mér ekkert mikið upp við það þar sem minn fyrrverandi var líka mikið inni í þessu og ég leyfði honum bara að sinna því. Ég sá það ekki sem rautt flagg, því mér stóð hreinlega á sama. Fólk er með sín áhugamál og það er bara frábært, ég þarf ekki að blanda mér í það og ég hafði engan áhuga á því. En þegar ég fór að opna mig um mín markmið fyrir árið, sem var að kaupa mína fyrstu íbúð, barst rafmyntaáhugi hans til tals. Mig langaði að komast af leigumarkaðnum fyrir mig og strákana mína og hann bauðst til að hjálpa mér með það, með því að safna meiri pening. Ég, á þeim tíma, treysti honum og hugsaði; hann á nú sitt eigið fyrirtæki og vill hafa skatta og fjármál upp á tíu. Ég var hikandi en hann leiddi mig í gegnum þetta og sagði mér að leggja bara smá summu inn á hann og hann myndi hjálpa mér að ávaxta peninginn og fá meiri pening til baka. Ég samþykkti að gera það og græddi smá í byrjun. Það gerði mig spennta og ég man að ég hugsaði með mér „vá, hann er hérna til að hjálpa mér. Við erum að gera þetta saman.“ Traust mitt á honum var mikið.“

Sunneva hélt áfram að fjárfesta með manninum og urðu upphæðirnar stærri og stærri þrátt fyrir að þau hefðu aldrei hist eða talað við hvort annað í gegnum síma. Á endanum náði vinur hennar að sannfæra Sunneva að það væri verið að hafa hana að fífli. Þegar hún reyndi að fá pening sinn til baka hvarf maðurinn sem hún kynntist á Tinder og heimasíðan sem hún notaði til að fjárfesta hvarf einnig.

„Ég kem sterkari út úr þessu og kem inn af meiri krafti. Ég hef lært eftir þetta að slökun og að hægja á sér getur hjálpað mér. Ég þarf ekki að vera allt fyrir alla og ég má setja mig í fyrsta sæti, hlúa að sjálfri mér og leita mér aðstoðar,“ sagði hún svo um framtíðina og heilsuna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kleip í konurassa af hlaupahjóli
Innlent

Kleip í konurassa af hlaupahjóli

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum
Innlent

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum
Myndband
Heimur

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum

Óður hestur drap ungmenni í Central Park
Myndband
Heimur

Óður hestur drap ungmenni í Central Park

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla
Myndir
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka
Innlent

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá
Minning

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá

Réðst harkalega á barnsmóður sína
Innlent

Réðst harkalega á barnsmóður sína

Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla
Myndir
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

Húsið var reist árið 1964
Lofa langlífi með grískri lífsspeki
Fólk

Lofa langlífi með grískri lífsspeki

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní
Myndband
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu

Málmhausar skelltu sér í golf
Myndir
Fólk

Málmhausar skelltu sér í golf

Sunnuvegshöll komin á sölulista
Myndir
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

Loka auglýsingu