1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum

Var einnig með mikið magn af barnaníðsefni í sínum fórum

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt ónafngreindan karlmann í 16 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn átta stúlkum á aldrinum 12 til 14 ára. Fullnustu refsingarinnar var frestað og fellur hún niður að þremur árum liðnum haldi maðurinn almennu skilorði.

Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa árið 2022 átt óviðeigandi samskipti við stúlkurnar í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Dómurinn tekur til átta brotaþola sem voru á aldrinum 12 til 14 ára þegar brotin áttu sér stað.

Jafnframt var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum mikið magn myndefnis sem sýnir kynferðislega misnotkun barna. Við rannsókn málsins lagði lögregla hald á farsíma hans þar sem efnið fannst.

Maðurinn játaði brotin skýlaust og var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu. Í dóminum kemur fram að geðrannsókn hafi verið framkvæmd á honum. Niðurstaða matsins var sú að hann væri sakhæfur og gerði sér grein fyrir muninum á réttu og röngu.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði játað brotin og viðurkennt bótaskyldu gagnvart brotaþolum. Þá var einnig tekið tillit til þess að rannsókn og meðferð málsins hafði dregist verulega. Til refsiþyngingar horfði hins vegar að brotin beindust gegn ungum börnum og að umfang brotanna væri verulegt.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hæfileg refsing væri 16 mánaða fangelsi. Vegna dráttar á rannsókn og útgáfu ákæru var þó ákveðið að skilorðsbinda refsinguna til þriggja ára.

Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða brotaþolunum miskabætur sem nema samtals 3,3 milljónum króna. Þá var farsími hans gerður upptækur og honum gert að greiða rúmlega 6,5 milljónir króna í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

„Margir munu vakna gjaldþrota í dag.“
Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu