1
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

2
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

3
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

4
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

5
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

6
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

7
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

8
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

9
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

10
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Til baka

„Að tala svona um starfsfólk sitt er fyrir neðan allar hellur“

Hildur Björnsdóttir gerði lítið úr starfi eigin starfsmanna

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirEr borgarstjóri Reykjavíkur
Mynd: BHJ

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar og fyrrverandi starfsmaður Mannréttindaskrifstofu borgarinnar, gagnrýnir harðlega ummæli Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um starfsemi skrifstofunnar.

Ugla Stefanía birtir myndskeið frá RÚV þar sem Hildur segir að starfsmenn Mannréttindaskrifstofunnar hafi ekki verið að gera neitt gagn. Ugla segir mikinn mun á því að ráðast í skipulagsbreytingar og hagræðingu annars vegar og að gera lítið úr störfum starfsfólks hins vegar.

„Mér finnst eitt að fara í skipulagsbreytingar og hagræðingu, en það er eitthvað allt annað að segja að starfsfólkið þitt hafi ekki verið að gera neitt gagn. Í því felst gríðarlegt virðingarleysi,“ segir Ugla Stefanía.

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar var lögð niður í sumar í tengslum við umfangsmiklar skipulagsbreytingar hjá borginni. Borgarráð samþykkti breytingarnar í sumar og voru verkefni skrifstofunnar færð til annarra sviða borgarinnar.

Ugla Stefanía segir starf Mannréttindaskrifstofunnar hafa spannað 18 ár og að á þeim tíma hafi starfsfólk sinnt fjölmörgum verkefnum á sviði ofbeldisvarna, aðgengis, hinsegin mála, lýðræðis og jafnréttis. Hluti verkefnanna hafi verið lögbundinn.

„Svona ummæli finnst mér vera ósanngjörn, ófagleg og lýsa fullkomnu skilningsleysi á þeim verkefnum og starfi sem skrifstofan hefur sinnt í nær tvo áratugi,“ segir hún.

Ugla Stefanía bendir jafnframt á að fjórir af sex starfsmönnum skrifstofunnar hafi haldið áfram störfum hjá borginni og verið færðir á önnur svið, þar á meðal hún sjálf.

„Að fólk leyfi sér að tala svona um starfsfólk sitt er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Við eigum öll skilið meiri virðingu en svo,“ segir hún og lýkur færslunni með orðunum:

„Kveðja, ein af fyrrum gagnslausu starfskröftum Mannréttindaskrifstofu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Helgi Ólafsson er fallinn frá
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið
Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Loka auglýsingu