1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

3
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

8
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Heimir Hallgrímsson
Heimir HallgrímssonEr þjálfari Írlands
Mynd: PAUL FAITH / AFP

Ísraelska knattspyrnusambandið hefur svarað ummælum Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, af hörku og sakar hann um heimsku, fáfræði og hræsni. Ummælin falla í aðdraganda tveggja umdeildra leikja Írlands og Ísraels í Þjóðadeildinni.

Írland hefur leik í Þjóðadeildinni gegn Kosovo í Pristina á fimmtudag en fram undan eru einnig tveir leikir gegn Ísrael.

Mikil umræða hefur verið á Írlandi um leikina vegna þjóðarmorðsins á Gaza og hafa komið fram kröfur um að írska landsliðið sniðgangi viðureignirnar. Á aukaaðalfundi írska knattspyrnusambandsins, FAI, í júlí var hins vegar samþykkt tillaga um að leikirnir skyldu fara fram.

Heimir ræddi stöðuna þegar hann tilkynnti landsliðshóp sinn í síðustu viku. Hann sagði suma leikmenn óþægilega með tilhugsunina um að mæta Ísrael en að sú staðreynd að þeir hefðu þegið landsliðsboðið sýndi sterkan liðsanda.

Þegar Heimir var spurður hvernig gengi að halda einbeitingu leikmanna við knattspyrnuna í aðdraganda leikjanna svaraði hann:

„Ég hef sagt það áður, við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael.“

Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð í Ísrael. Ísraelska knattspyrnusambandið birti yfirlýsingu á opinberum Twitter-reikningi sínum þar sem Heimir var gagnrýndur persónulega.

„Við höfum lagt okkar af mörkum til heimsins og mannkynsins á ótal sviðum og unnið til glæsilegs fjölda Nóbelsverðlauna í leiðinni. Því miður höfum við ekki enn fundið lækningu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálfari @IrelandFootball sýnir,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.

Sambandið sneri síðan orðum Heimis gegn honum og bætti við:

„Við erum ekki að spila með fáfræði, hræsni og heimsku. Við erum að spila gegn þjálfaranum sem holdgerir þetta.“

Samkvæmt írskum fjölmiðlum hefur ísraelska knattspyrnusambandið jafnframt haft til skoðunar að leggja fram formlega kvörtun til UEFA vegna ummæla Heimis.

Í september komst óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið og héldi áfram að fremja þjóðarmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað þeirri niðurstöðu.

Þrátt fyrir þrýsting um að sniðganga leikina hefur FAI ákveðið að halda sig við þá ákvörðun að landsliðið mæti Ísrael. Ummæli Heimis og hörð viðbrögð ísraelska sambandsins hafa nú aukið enn frekar á spennuna fyrir leikina tvo.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega
Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega

„Það þarf að svipta félagið titlunum“
Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki
Myndband
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Loka auglýsingu