Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Blóð­um­merki voru víða í svefn­her­berg­inu þar sem árásin átti sér stað

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Víkingur

Aron Atli Bergmann Val­týs­son hefur verið dæmdur í 12 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lík­ams­árás, hót­anir, brot gegn nálg­un­ar­banni og sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás gegn þáver­andi sam­býl­is­konu sinni en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur tók málið fyrir.

Honum var jafn­framt gert að greiða kon­unni 1,7 millj­ónir króna í miska­bætur auk vaxta og drátt­ar­vaxta.

Málið varð­aði nokkur atvik á árunum 2024 og 2025. Meðal ann­ars var Aron Atli ákærður fyrir að hafa aðfara­nótt 5. maí 2024 ráð­ist gegn kon­unni á skemmti­stað og bitið hana í hök­una. Síðar sömu nótt var honum gefið að sök að hafa hótað í sím­tali að berja hana þegar hún kæmi heim. Konan sagði lög­reglu að hún hefði orðið hrædd og farið heim í leigu­bif­reið ásamt vini sínum.

Þegar lög­regla kom á heim­ili kon­unnar var hún sam­kvæmt dómnum í miklu upp­námi og hrædd. Hún var með sjá­an­legan áverka á höku og sagði ákærða hafa bitið sig fyrr um kvöldið. Vinur hennar sagði lög­reglu jafn­framt að hann hefði séð áverk­ann og heyrt hót­anir í sím­tali á leið þeirra heim. Aron Atli var hand­tek­inn í kjöl­farið.

Fyrir dómi sagði Aron Atli að bitið hefði ekki verið árás heldur hefði hann ætlað að „narta“ í kon­una þegar þau voru að kyss­ast. Hann hefði hins vegar bitið of fast. Konan hafn­aði þeirri lýs­ingu og sagði þau ekki hafa verið að kyss­ast þegar hann beit hana. Hún hefði heldur aldrei sam­þykkt slíkt og ekki hefði verið um venju í sam­bandi þeirra að ræða.

Hann var einnig ákærður fyrir brot gegn nálg­un­ar­banni. Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði 21. febr­úar 2025 lagt nálg­un­ar­bann á hann gagn­vart kon­unni. Honum var meðal ann­ars bannað að hafa sam­band við hana. Samkvæmt ákærunni hringdi hann fjórum sinnum í hana aðfara­nótt 4. mars sama ár.

Aron við­ur­kenndi að hafa hringt en benti á að konan hefði áður hringt sex sinnum í hann, 23. febr­úar. Fyrir dómi sagð­ist hann hafa vitað að hann væri í nálg­un­ar­banni og því hefði hann verið óviss um hvort hann mætti hringja til baka.

Dómurinn taldi fyrri sím­töl kon­unnar ekki rétt­læta að hann setti sig í sam­band við hana. Óumdeilt væri að nálg­un­ar­bannið hefði verið í gildi og að honum hefði verið ljóst að hann mætti ekki hringja í hana. Var hann því sak­felldur fyrir brot gegn nálg­un­ar­bann­inu.

Alvar­leg­asti ákæru­liður máls­ins laut að atvikum 2. júní 2024. Þá var Aron Atli ákærður fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás gegn kon­unni á heim­ili hennar.

Konan lýsti því að hennar þáver­andi hefði komið heim mjög ölv­aður undir morgun og ráð­ist á hana þar sem hún lá í rúm­inu. Hann hefði ítrekað tekið hana háls­taki og þrengt svo að hún gat ekki andað, sleppt tak­inu og síðan tekið hana aftur háls­taki. Þá hefði hann kastað henni í gólfið, gripið í hár hennar og skellt höfði hennar ítrekað í gólfið auk þess að slá hana víða um lík­amann.

Konan hlaut umfangs­mikla áverka. Meðal þeirra voru kúla og mar á hnakka, mar yfir eyrum, glóð­ar­auga, mar yfir kjálka­beinum, sprungin vör, áverkar á hálsi og fjöl­margir mar­blettir á lík­am­anum. Læknir sem skoð­aði hana á bráða­mót­töku taldi áverk­ana geta sam­rýmst frá­sögn hennar.

Aron Atli neit­aði sök vegna þessa ákæru­liðar og sagð­ist ekki muna eftir atvik­unum sökum ölv­unar. Hann gat ekki útskýrt hvernig konan hlaut áverk­ana.

Dómurinn taldi fram­burð kon­unnar hins vegar skýran og stöðugan í meg­in­at­riðum og að hann fengi stoð í lækn­is­vott­orði, ljós­myndum og öðrum gögnum. Þá voru blóð­um­merki víða í svefn­her­berg­inu þar sem árásin átti sér stað.

Sér­stak­lega var fjallað um háls­takið. Bráða­læknir bar fyrir dómi að áverk­arnir á hálsi kon­unnar sam­ræmd­ust því að hún hefði verið tekin háls­taki ítrekað. Hann sagði jafn­framt að öll háls­tök væru stór­hættu­leg og að kyrk­ing gæti leitt til dauða.

Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að árásin teld­ist sér­stak­lega hættu­leg, meðal ann­ars vegna þess að Aron Atli hefði ítrekað skellt höfði kon­unnar í gólfið og þrengt að hálsi hennar. Árásin hefði þannig beinst að sér­stak­lega við­kvæmum lík­ams­hlutum.

Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að brotin væru gróf og alvar­leg og að konan hefði verið sam­býl­is­kona Arons Atla þegar meg­in­brotin voru framin. Á móti lá fyrir að hann hafði ekki áður verið sak­felldur fyrir refsi­verða hátt­semi.

Refs­ingin var ákveðin 12 mán­aða fang­elsi, skil­orðs­bundið í tvö ár. Konan hafði kraf­ist sam­tals 2,1 millj­ónar króna í miska­bætur en dóm­ur­inn taldi 1,7 millj­ónir hæfi­legar.

Auk bóta­greiðsl­unnar var Aroni Atla gert að greiða 1,8 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun verj­anda síns, 1,3 millj­ónir í þóknun rétt­ar­gæslu­manns kon­unnar og 60.643 krónur í annan sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Í hlaðvarpinu Handsome Podcast svaraði Alanis Morissette spurningu um hvort sambandsslit hefðu fengið hana til að íhuga að laðast að konum.
Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Sorpa hefur ákveðið að senda drykkjarfernur á ný til brennslu með orkunýtingu í stað endurvinnslu
Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys