
Pólsk yfirvöld hafa handtekið 17 ára pilt sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á skóla og mosku í landinu. Pilturinn er sagður aðhyllast hugmyndafræði nasista.
Saksóknarar sem fara með hryðjuverkamál í Póllandi greindu frá handtökunni á þriðjudag. Pilturinn, sem aðeins er nefndur Pawel G., hefur verið ákærður fyrir að undirbúa hryðjuverkaárás, breiða út hugmyndafræði nasisma og fasisma, hvetja til kynþáttahaturs og reyna að verða sér úti um vopn.
Við leit í tölvu og síma piltsins fundu rannsakendur samskipti sem sögð eru tengjast undirbúningi fjöldaárása. Þar hafi meðal annars verið rætt um árásir á skóla og mosku, kaup á skotvopnum, skotfærum og herbúnaði auk notkunar handsprengja og bensínsprengja.
Við húsleit fundust einnig sprengiefni, hnífar, byssustingur og munir merktir táknum nasista og fasista.
Pólska innanlandsöryggisstofnunin ABW segir tvo aðra unglinga hafa verið handtekna í tengslum við rannsóknina. Þremenningarnir eru sagðir hafa verið í samskiptum við hægriöfgamenn á Telegram og Discord.
Pawel G. neitar sök. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi.