1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

3
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

4
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

5
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

6
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

„Og svaraðu nú“

Jóhannes Haukur
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Mynd: FRAZER HARRISON / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur á Facebook beint nokkrum spurningum til Málfríðar Bjarnadóttur, stofnanda smáforritsins Læsis, í kjölfar umræðu síðustu daga um notkun forritsins í grunnskólum.

Jóhannes hafði áður gagnrýnt Læsi harðlega og lýst forritinu sem samfélagsmiðli fyrir börn. Málfríður leiðrétti þá lýsingu í samtali við Vísi og sagði Læsi hvorki vera samfélagsmiðil né forrit ætlað börnum. Forritið er ætlað foreldrum til þess meðal annars að halda utan um heimalestur barna.

Málfríður sagði í samtali við Vísi í gær að hún teldi umræðuna um Læsi að miklu leyti ósanngjarna, þótt fyrirtækið fagni gagnrýni og ábendingum.

„Við fögnum öllum ábendingum og allri gagnrýni en okkur finnst þetta svolítið ósanngjörn umræða eins og hún er sett fram núna,“ sagði Málfríður.

Hún sagði jafnframt að margar breytingar og viðbætur í Læsi hefðu orðið til eftir ábendingar frá kennurum og foreldrum og að forsvarsmenn forritsins hefðu gjarnan viljað ræða málið við Jóhannes áður en gagnrýnin var sett fram opinberlega.

„Við hefðum fagnað því mjög mikið ef hann Jóhannes hefði haft samband við okkur,“ sagði Málfríður.

„Þarna er verið að líkja Læsi við samfélagsmiðil. Í okkar huga er Læsir náttúrulega alls ekki samfélagsmiðill af því að þarna ertu ekki með neina aðra en sjálfa þig. Þú hefur ekki aðgang að neinu hjá öðrum og það er enginn fréttaveggur, engir vinir, engin læk, engin ummæli. Þú getur ekki fylgst með framvindu hjá neinum öðrum heldur en bara þínu eigin barni.“

Jóhannes heldur áfram

Jóhannes hefur nú beint sjónum sínum að öðrum þáttum tengdum Læsi, meðal annars kostnaði sveitarfélaga, gagnaöflun og samningum hins opinbera við fyrirtækið Skólalausnir.

„Ég hefði líka þegið samtal áður en þessu appi var þröngvað upp á mig. En það var ekki boðið upp á það. En þá skulum við bara taka samtal núna,“ skrifar Jóhannes og beinir orðum sínum að Málfríði.

Hann tekur fram að sumir foreldrar séu ánægðir með Læsi og eigi að geta notað forritið kjósi þeir það. Hann gagnrýnir hins vegar að foreldrum sé gert að nota það í sumum skólum og telur að ekki eigi að skylda alla til notkunar.

Jóhannes gerir jafnframt athugasemdir við skráningu upplýsinga um heimalestur, meðal annars mínútufjölda og blaðsíðufjölda. Hann veltir því upp hvort slíka skráningu mætti fremur framkvæma í Mentor.

Þá óskar leikarinn eftir upplýsingum um hvað Reykjavíkurborg hafi greitt fyrir Læsi frá upphafi og hver árlegur kostnaður borgarinnar sé. Hann vill einnig vita til hversu langs tíma samningur hafi verið gerður og hvað önnur sveitarfélög greiði fyrir þjónustuna.

Að lokum spyr Jóhannes hvort opinberir aðilar setji einhver skilyrði um breytingar og uppfærslur á forritinu eða hvort Skólalausnir hafi frjálsar hendur um hvaða virkni sé bætt við.

„Og svaraðu nú,“ segir Jóhannes í lok færslunnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“
Heimur

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“

Traoré stendur fast gegn Frakklandi
Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis
Innlent

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi
Innlent

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi

Frá bónorði í bleyjuskipti hjá Ísaki og Agnesi
Fólk

Frá bónorði í bleyjuskipti hjá Ísaki og Agnesi

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ
Innlent

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins
Myndir
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum
Menning

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur
Myndband
Heimur

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur

Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

„Og svaraðu nú“
Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis
Innlent

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi
Innlent

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ
Innlent

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi

Loka auglýsingu