1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

3
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

4
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

5
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

6
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“

Traoré stendur fast gegn Frakklandi

Emmanuel og Traoré
Emmanuel Macron forseti Frakklands og Ibrahim Traoré herforingi Búrkína FasóBúrkína Fasó rekur franska diplómata úr landi
Mynd: Samsett mynd

Stjórnvöld í Búrkína Fasó hafa opinberlega slitið stjórnmálasambandi við Frakkland, fyrrum nýlenduherra sinn. Ákvörðunin markar hápunkt margra ára vaxandi spennu milli ríkjanna. Leiðtogi herforingjastjórnarinnar, Ibrahim Traoré, stendur fast á því að landið muni ekki láta undan þrýstingi eftir að Frakkar stöðvuðu alla þróunaraðstoð og fjárhagslegan stuðning við ríkið, segir í frétt á Reuters.

„Aðstoðin drap okkur ekki, fjarvera hennar gerir það ekki heldur“

Viðbrögð Traoré við ákvörðun Frakka um að skrúfa fyrir fjármagn til landsins hafa vakið mikla athygli víða um Afríku. Í stað þess að leita eftir samningum eða biðja um áframhaldandi stuðning, sneri Traoré dæminu við og gagnrýndi áratuga langa sögu þróunaraðstoðar.

„Við höfum þegið franska aðstoð í 63 ár, og samt hefur landið okkar ekki þróast,“ sagði Traoré í ávarpi sínu. „Að missa þennan stuðning mun þess vegna ekki verða okkur að falli. Þvert á móti mun það neyða okkur til að leggja harðar að okkur og treysta á eigin krafta.“

Traoré bætti því við að Búrkína Fasó væri enn eitt fátækasta ríki jarðar þrátt fyrir sex áratugi af fjárhagsstuðningi og hernaðarsamningum, sem sýndi að kerfið hefði aldrei verið hannað til að skapa raunverulegt sjálfstæði.

Saka Frakka um nýlendustefnu og afskipti

Samskipti ríkjanna hafa farið hríðversnandi síðan Traoré tók völdin í valdaráni árið 2022. Stjórn hans vísaði fljótlega frönskum sérsveitum úr landi, rifti hernaðarsamningi frá árinu 1961 og rak franska diplómata á brott.

Í yfirlýsingu frá upplýsingaráðuneyti Búrkína Fasó voru Frakkar sakaðir um „nýlendumetnað“ (e. neo-colonial ambitions) og að styðja við andstæðinga og undirróðursstarfsemi sem ógni öryggi á Sahel-svæðinu. Frönsk stjórnvöld hafa alfarið hafnað þessum ásökunum og kallað ákvörðunina „ómaklega og fjandsamlega“.

Sahel - svæðið nær yfir hluta af fjölda ríkja, þar á meðal Máritaníu, Senegal, Malí, Búrkína Fasó, Níger, Nígeríu, Tsjad, Súdan og Erítreu.

Ný bandalög í stað hinna gömlu

Á undanförnum árum hefur pólitískt landslag í Mið-Sahel breyst mikið. Þrjú lykilríki á svæðinu; Malí, Búrkína Fasó og Níger lúta öll herforingjastjórnum eftir röð valdarána. Þessi ríki hafa tekið sig saman, stofnað Bandalag Sahel-ríkjanna (AES), rekið franska herinn á brott og slitið gömlum nýlendutengslum á borð við stjórnmálasamband sitt við Frakkland. Í staðinn hafa þau leitað eftir auknum efnahagslegum og hernaðarlegum stuðningi frá Rússlandi.

Sahel-svæðið er eitt hættulegasta átakasvæði heims í dag samkvæmt Global Conflict Tracker. Hryðjuverkahópar og íslamistar tengdir al-Kaída og Íslamska ríkinu, svo sem JNIM og IS Sahel, hafa nýtt sér veika innviði og stjórnarhætti til að hrifsa til sín landsvæði. Þessi vargöld hefur leitt til þess að meira en helmingur allra dauðsfalla í heiminum sem tengjast hryðjuverkum eiga sér stað á landamærasvæðum Búrkína Fasó, Malí og Níger.

Átökin og loftslagsvandinn hafa búið til gríðarlega flóttamannabylgju. Milljónir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín, skólum hefur verið lokað í þúsundatali og alþjóðlegar stofnanir eins og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og UNICEF berjast við að koma matvælum og neyðaraðstoð til íbúa.

Búrkína Fasó hefur á sama tíma fjarlægst vestræn ríki og leitað eins og fyrr segir eftir auknu samstarfi við Rússland og Kína, bæði á sviði efnahags- og öryggismála.

Stjórnvöld í Úagadúgú taka fram að þótt stjórnmálasambandi ríkjanna sé slitið, muni það ekki hafa áhrif á söguleg, menningarleg eða mannleg tengsl á milli íbúa Búrkína Fasó og Frakklands. Krafa Traoré er hins vegar skýr: Öll framtíðarsamstarf verða að byggjast á fullkomnu jafnræði.

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent,“ sagði leiðtoginn. „Við munum meta samstarf út frá því hvað gagnaðilar koma með að borðinu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

„Og svaraðu nú“
Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis
Innlent

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi
Innlent

Senda neyðarkall vegna þjónustu við heilabilaða á Íslandi

Frá bónorði í bleyjuskipti hjá Ísaki og Agnesi
Fólk

Frá bónorði í bleyjuskipti hjá Ísaki og Agnesi

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ
Innlent

Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins
Myndir
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Endaði í fangaklefa eftir líkamsárás í Kópavogi

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum
Menning

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur
Myndband
Heimur

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur

Heimur

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“
Heimur

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“

Traoré stendur fast gegn Frakklandi
Harry og Meghan flýja Bretland á ný
Heimur

Harry og Meghan flýja Bretland á ný

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur
Myndband
Heimur

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna
Heimur

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

Loka auglýsingu