1
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

2
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

3
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

4
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

5
Innlent

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

6
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

7
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

8
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

9
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

10
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Til baka

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

Fjölskylda Douglas greindi frá andláti hennar

Carly Douglas
Carly Douglas
Mynd: Carly Douglas/Instagram

Bandaríski líkamsræktaráhrifavaldurinn Carly Douglas er látinn, aðeins þremur mánuðum eftir að hún greindi frá því opinberlega að hún hefði verið greind með langt gengið krabbamein. Hún var 36 ára gömul.

Fjölskylda Douglas greindi frá andláti hennar í færslu á samfélagsmiðlum þar sem henni var minnst með hlýjum orðum. Þar kom fram að hún hefði látist 13. júní síðastliðinn eftir erfiða baráttu við sjúkdóminn.

Í yfirlýsingu fjölskyldunnar segir að Douglas hafi tekist á við veikindin af miklum styrk og staðfestu, jafnframt því sem hún hafi haldið í vonina og trú sína allt til loka. Þá var sérstaklega minnst á þann stuðning og kærleika sem hún sýndi fjölskyldu sinni á meðan á veikindunum stóð.

Douglas greindi frá því í mars síðastliðnum að hún hefði verið greind með krabbamein á fjórða stigi í maga. Hún sagði frá því í tilfinningaþrungnu myndskeiði að hún hefði leitað á bráðamóttöku vegna mikilla verkja. Við rannsókn hafi komið í ljós stórt krabbameinsæxli í maga hennar og frekari rannsóknir staðfest langt genginn sjúkdóm.

Eftir greininguna deildi Douglas reglulega upplýsingum um veikindi sín og meðferð á samfélagsmiðlum, þar sem hún hafði byggt upp stóran hóp fylgjenda. Færslur hennar vöktu athygli fyrir hreinskilni og jákvætt viðhorf þrátt fyrir alvarlegar aðstæður.

Fjölskylda hennar sagði að hún hefði elskað börnin sín þrjú, River, Faye og Townes, af öllu hjarta og notið hverrar stundar með þeim og eiginmanni sínum, David Douglas.

„Við erum harmi slegin yfir missinum, en syrgjum ekki án vonar,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu fjölskyldunnar, þar sem fram kom að minning hennar myndi lifa áfram meðal fjölskyldu, vina og fjölmargra fylgjenda hennar.

Andlát Carly Douglas hefur vakið mikla sorg meðal aðdáenda hennar og þeirra sem fylgdust með ferðalagi hennar í gegnum veikindin.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Höfðu skilið þrjú börn sín eftir á æskulýðssamkomu í kirkju
Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga
Innlent

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga

Hægt á verðhækkunum á matvöru
Peningar

Hægt á verðhækkunum á matvöru

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni
Peningar

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun
Fólk

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð
Landið

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Höfðu skilið þrjú börn sín eftir á æskulýðssamkomu í kirkju
Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum
Heimur

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Loka auglýsingu