1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Nýtt tilraunaverkefni á Akureyri?

Akureyri
Skora á Akureyrarbæ að breyta snjógeymslu við Mýrarveg í samfélagsgarð

Fimm manna starfshópur vinnur nú að skýrslu sem leggja á fyrir bæjarstjórn Akureyrar þar sem þess er farið á leit að vannýttu svæði við Mýrarveg verði breytt í lifandi samfélagsgarð. Hugmyndin snýst um að efla lýðheilsu, vinna gegn félagslegri einangrun og skapa grænan samverustað fyrir íbúa á öllum aldri.

Það er Eyrún Gígja Káradóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun, sem varpar hugmyndinni fram í grein sem birtist á akureyri.net. Auk Eyrúnar skipa starfshópinn þau Heiðrún Sigurðardóttir, forstöðumaður Matjurtagarða Akureyrar, Valur Þór Hilmarsson, forstöðumaður Lystigarðsins, og Fjóla Sigurðardóttir og Margrét Alfreðsdóttir fyrir hönd stjórnar Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK).

Samfélagsgarður á Akureyri
Mynd: Samfélagsgarður á Akureyri

Úr snjógeymslu í grænan þráð hverfisins

Horft er til svæðis við norðurenda Mýrarvegar, nánar til tekið sunnan við blokkirnar númer 111–117. Svæðið er í dag nýtt sem snjógeymsla á veturna en undir möl og byggingarefni á sumrin, og mýrlent svæðið er oft blautt og subbulegt langt fram á sumar.

Hópurinn sér mikla möguleika í að breyta þessu svæði í hjarta græns þráðar sem tengi saman Klettaborgarhverfi, Mýrarhverfi og Gerðahverfi. Hugmyndirnar fela meðal annars í sér:

  • Upphækkuð ræktunarbeð og lítil gróðurhús sem henta fólki á öllum aldri.
  • Samverusvæði með bekkjum, borðum, útiskák, pétanque-velli og einföldum líkamsræktartækjum.
  • Betri göngu- og hjólastíga sem liðast á milli trjánna á nærliggjandi grónum svæðum, auk útsýnisstaðar á klöppunum með útsýni yfir Eyjafjörð.

„Ræktum ekki aðeins grænmeti, við ræktum samfélag“

Ræktunarmöguleikar eru þegar til staðar á Akureyri hjá Gömlu gróðrarstöðinni, en Eyrún leggur áherslu á að samfélagsgarður snúist fyrst og fremst um fólkið og nærumhverfið. Garðurinn eigi að vera staður þar sem engin krafa er gerð, þar sem nágrannar hittast, nýir íbúar kynnast hverfinu og eldri borgarar miðla þekkingu til yngri kynslóða. „Þannig ræktum við ekki aðeins grænmeti, við ræktum samfélag,“ skrifar Eyrún.

Áskorun um að byrja smátt

Hópurinn skorar á nýjan meirihluta hjá Akureyrarbæ að dusta rykið af eldri tillögum og gefa verkefninu tækifæri með því að byrja smátt. Lagt er til að ráðast ekki í dýrar heildarframkvæmdir strax, heldur setja upp nokkur ræktunarbeð og bekki og prófa verkefnið sem tilraun í tvö til þrjú sumur til að meta áhugann.

Að lokum hvetur starfshópurinn áhugasama bæjarbúa sem vilja taka þátt í mótun skýrslunnar og verkefnisins til að setja sig í samband við einhvern úr hópnum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Fjölskylduráð Múlaþings hafnaði að veita heilbrigðisstarfsfólki forgang að leikskólaplássi.
Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Loka auglýsingu