
Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunnarsson tókust harkalega á á Facebook í kjölfar gagnrýni Bubba á umsvif breska auðjöfursins Jim Ratcliffe á Íslandi.
Bubbi deildi pistli Herdísar Kjerulf Þorgeirsdóttur um Ratcliffe og lét sjálfur þung orð falla. Hann gagnrýndi meðal annars jarðakaup og ítök auðjöfursins í íslenskum laxveiðiám og sagði stöðuna vera komna út fyrir öll mörk.
„Allt við þetta lið er ógeðfellt,“ skrifaði Bubbi og hélt því fram að íslenskum veiðimönnum væri í auknum mæli haldið frá ánum. Sagði hann þær vera orðnar að „leikföngum fyrir hann og hirðina í kringum hann“.
Bubbi dró jafnframt í efa að náttúruvernd væri raunveruleg ástæða umsvifanna og sagði það vera fyrirslátt. Hann kallaði eftir því að stjórnvöld gripu inn í þróunina.
Í upphaflegri færslu sagði Bubbi jafnframt að Ratcliffe hefði verið að reyna að ná yfirráðum yfir Laxá í Aðaldal. Sú fullyrðing varð kveikjan að orðaskiptum hans og Pálma.
Pálmi krafði Bubba svara
Pálmi spurði Bubba hvort Ratcliffe hefði í raun reynt að kaupa ána ásamt jörðum og öðru sem henni tengdist. Bubbi svaraði ekki spurningunni beint í fyrstu heldur sagði við Pálma að hann væri „of tengdur honum“.
Pálmi brást við og krafðist skýringa.
„Hvað áttu við? Og geturðu ekki svarað spurningunni með öðrum hætti en aðdróttunum,“ skrifaði Pálmi.
Bubbi spurði þá hvort Pálmi væri ekki að vinna fyrir Ratcliffe og Gísla og sæi um neðra svæðið við Hofsá. Hann bætti við að ef svo væri ekki myndi hann taka orð sín til baka.
Pálmi hafnaði því alfarið.
„Ég er ekki að vinna fyrir einn eða neinn nema sjálfan mig. Er með silungasvæði Hofsár á leigu ásamt vinum mínum,“ skrifaði Pálmi og krafði Bubba aftur svara um Laxá.
Bubbi leiðrétti þá fyrri ummæli sín. Sagði hann orðalagið hafa verið klaufalegt og að átt hefði verið við að menn hefðu falast eftir því að taka Laxá á leigu en ekki kaupa hana.
Orðaskiptunum lauk þó ekki þar. Bubbi sagði að ef Pálmi leigði neðra svæðið af Ratcliffe væri hann tengdur honum. Pálmi svaraði þá stutt og ákveðið og sagði Bubba „ekki vera fáviti“.
Deilan varð enn persónulegri undir lokin. Bubbi sagðist ekki vera að „hossa“ Ratcliffe en Pálmi svaraði að Bubbi hossaði engum nema eitthvað væri í því fyrir hann. Sagðist Pálmi að lokum ekki nenna frekari orðaskiptum.
