1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Til baka

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

„Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki lengur leikið í leikriti. Ég get ekki lengur leikið í kvikmynd. Ég get ekki lengur lesið.“

Judy Dench
Lafði Judy DenchSjónin hefur svipt Dench möguleikann á að leika
Mynd: CHRIS JACKSON / POOL / AFP

Breska leikkonan Judi Dench, sem hefur átt farsælan feril í sjö áratugi, segir að versnandi augnsjúkdómur komi nú í veg fyrir að hún geti haldið áfram að leika.

Dench, sem er 91 árs og hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn, greindist með aldurstengda augnbotnahrörnun árið 2012. Sjúkdómurinn hefur smám saman gert henni erfiðara fyrir í daglegu lífi og haft alvarleg áhrif á leikferil hennar.

Í nýlegu viðtali í þættinum Today á BBC Radio 4 lýsti hún stöðu sinni með þessum orðum:

„Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki lengur leikið í leikriti. Ég get ekki lengur leikið í kvikmynd. Ég get ekki lengur lesið.“

Dench lagði áherslu á mikilvægi útvarps í lífi sínu og sagði að fólk yrði að læra að aðlagast breyttum aðstæðum.

„Maður verður að aðlagast þessu öllu, taka tillit til þess og halda svo bara áfram án þess að hugsa of mikið um það,“ sagði hún.

Leikkonan sagði einnig að hún kæmi stundum auga á fólk og gengi til þess, jafnvel til að faðma það, en áttaði sig svo þegar hún kæmist nær að hún þekkti fólkið ekki. Hún bætti við að hún gæti alls ekki séð andlit viðmælanda síns, Emmu Barnett.

Sorgmædd yfir því að sjá ekki bláklukkurnar

Dench sagðist sérstaklega sorgmædd yfir því að geta ekki lengur séð bláa litinn.

„Mér var sagt að bláklukkurnar hefðu verið stórkostlegar í sumar, en ég gat ekki séð eina einustu. Ég þekki þó trén mín og hluti af því sem ég sé byggist á minningunni og hluti á því sem ég vonandi get enn greint,“ sagði hún.

Þegar hún var spurð um öldrun sagðist hún ekki vilja hugsa of mikið um hana.

Í viðtali við tímaritið Notebook árið 2023 hafði Dench einnig rætt sjónvandann. Þá sagði hún sér ómögulegt að sjá almennilega á kvikmyndasetti eða lesa handrit, en hún reyndi að finna leiðir til að takast á við það. Hún hefði marga vini sem gætu hjálpað henni að læra handritin og byggði meðal annars á ljósmyndaminni sínu.

Árið 2019 hætti Dench að aka bíl vegna sjónskerðingarinnar. Hún lýsti þeirri ákvörðun sem einni erfiðustu reynslu lífs síns.

„Þetta var hræðilegt. En ég veit að ef ég sest aftur undir stýri gæti ég orðið einhverjum að bana,“ sagði hún þá.

Augnbotnahrörnun hefur áhrif á miðjusjónina

AMD er augnsjúkdómur sem getur gert miðjusjón fólks óskýra. Samkvæmt National Eye Institute verður aldurstengd augnbotnahrörnun „þegar öldrun veldur skemmdum á augnbotnsdílnum, þeim hluta augans sem stjórnar skarpri sjón beint fram á við.“ Sjúkdómurinn veldur ekki algjörri blindu.

Dench er talin ein fremsta leikkona sinnar kynslóðar. Hún hlaut Óskarsverðlaun árið 1999 fyrir hlutverk sitt í Shakespeare in Love og er einnig þekkt fyrir að leika M í James Bond-myndunum. Þá er hún einnig þekkt sem ein helsta sviðsleikkona sem Bretland hefur átt.

Í nýrri endurminningabók sinni, Is It Too Late to Make a Run For It?, rifjar hún meðal annars upp feril sinn í Bond-myndunum og segir Tomorrow Never Dies hafa verið krefjandi verkefni. Hún fjallar einnig um misheppnaða kvikmyndaútgáfu söngleiksins Cats.

Hér fyrir neðan má sjá lafði Judy Dench syngja lagið Send in the Clowns úr söngleiknum A Little Night Music árið 1995.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

„Örin hverfa aldrei alveg.“
Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

„Örin hverfa aldrei alveg.“
Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Loka auglýsingu