
Kyle Francis Kennedy, barnabarn Robert F. Kennedy og Ethel Kennedy, lést „friðsamlega“ á heimili sínu í Westwood í Massachusetts-ríki 21. september, sex árum eftir að mænuskaði varð til þess að hún lamaðist árið 2020. Hún var 42 ára.
Kyle eignaðist tvo syni, Conor, 12 ára, og Declan, 10 ára, með Liam Kerr. Dóttir þeirra, Josephine, lést skömmu eftir fæðingu árið 2014.
Í minningargrein sem birt var á vef útfararstofunnar Burke Funeral Homes er Kyle lýst sem konu sem hafi verið „blessuð með einstaklega mikilli greind, þurrum húmor og fegurð“.
Kyle var dóttir Michael Kennedy, sem lést árið 1997, og Victoria Denise Gifford. Hún nam sagnfræði við Georgetown-háskóla áður en hún lauk tveimur meistaragráðum, annars vegar í menntun ungra barna frá Pace-háskóla og hins vegar í menntastefnu og stjórnun frá Harvard-háskóla.
Hún helgaði starfsferil sinn áhuga sínum á menntun ungra barna.
„Hennar verður minnst fyrir alúð sína við börnin sín, Conor, Josephine og Declan, og stuðning við umbætur í menntakerfinu fyrir börn sem búa við erfiðar aðstæður og fólk sem býr við fötlun,“ segir í minningargreininni.
Árið 2019 hljóp Kyle Boston-maraþonið í „hellidembu“ og lauk hlaupinu á innan við fjórum klukkustundum. Það var 20 mínútum betri tími en faðir hennar hafði náð.
Ári síðar varð hún hins vegar fyrir alvarlegum mænuskaða sem breytti lífi hennar til frambúðar og „leiddi til langvarandi lömunar, fötlunar og annarra heilsufarsvandamála“.
„Árin sem fylgdu voru erfið, en Kyle barðist fyrir því að halda í þurran húmor sinn og einurð. Hún reyndi að vera eins góð móðir og mögulegt var fyrir syni sína og sinnti jafnframt tveimur ástkærum en óþægum hundum af tegundinni Wheaten Terrier,“ segir í minningargreininni.
Þar kemur einnig fram að Kyle hafi í kjölfar slyssins farið að berjast fyrir réttindum fólks með fötlun. Hún bar meðal annars vitni í þinghúsi Massachusetts-ríkis við umræður um mismunun gagnvart fötluðu fólki í heilbrigðisþjónustu.
Auk móður sinnar, sona og Kerr, sem minningargreinin vísar til sem fyrrverandi eiginmanns hennar, lætur Kyle eftir sig bróður sinn, Michael Kennedy yngri, og systur sína, Rory Gifford Kennedy.
Önnur sorgarfregn fyrir Kennedy-fjölskylduna
Andlát Kyle kemur innan við ári eftir að Tatiana Schlossberg, fjórmenningur hennar, lést í desember eftir baráttu við sjaldgæft blóðkrabbamein. Tatiana var barnabarn Johns F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og eiginkonu hans, Jacqueline Kennedy Onassis.
Tatiana átti tvö börn með eiginmanni sínum, George Moran: Edwin, fjögurra ára, og Josephine, tveggja ára.
Hún vissi að sjúkdómurinn væri ólæknandi og birti ritgerð þar sem hún hugleiddi líf sitt og þær hörmungar sem hafa fylgt fjölskyldu hennar.
„Allt mitt líf hef ég reynt að vera góð, góður nemandi, góð systir og góð dóttir, og að vernda móður mína og gera hana aldrei sorgmædda eða reiða,“ skrifaði Tatiana í ritgerð sem birtist í tímaritinu The New Yorker í nóvember síðastliðnum.
„Nú hef ég bætt nýrri sorg við líf hennar og líf fjölskyldu okkar, og það er ekkert sem ég get gert til að stöðva það.“
Kennedy-bölvunin
Hugtakið „bölvun Kennedy-fjölskyldunnar“ vísar til þeirrar röð dauðsfalla, slysa, morða og annarra hörmunga sem hafa dunið yfir hina þekktu bandarísku Kennedy-fjölskyldu í gegnum árin. Þessi meinta bölvun hefur einkum verið tengd afkomendum kaupsýslumannsins Josephs P. Kennedy eldri, en einnig hefur hún snert vini fjölskyldunnar, samstarfsfólk og aðra ættingja. Pólitísk morð og flugslys eru meðal þeirra atburða sem oftast eru nefndir í þessu samhengi.
Eftir Chappaquiddick-atvikið árið 1969, þegar Mary Jo Kopechne lést inni í bíl sem bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ted Kennedy ók, eftir að hann ók óviljandi út af mjórri brú og ofan í Poucha-tjörn. velti Ted því sjálfur upp hvort „einhver hræðileg bölvun hvíldi í raun yfir allri Kennedy-fjölskyldunni“. Gagnrýnendur hugmyndarinnar benda hins vegar á að þegar um stóra fjölskyldu er að ræða, sem spannar margar kynslóðir, sé ekki óeðlilegt að alvarlegir atburðir og hörmungar komi upp án þess að þar búi yfirnáttúruleg öfl að baki.
