
Skipstjórinn Páll Steingrímsson hefur ásamt Yngveldi Myrru Sturludóttur stofnað nýtt fyrirtæki á Akureyri sem hefur það að markmiði að sinna hvalaskoðun og annarri þjónustu við ferðamenn.
Félagið ber nafnið Sturlungar ehf. og er skráð til heimilis að á Akureyri. Páll er stjórnarmaður félagsins auk þess að fara með framkvæmdastjórn og prókúruumboð. Yngveldur Myrra er varamaður í stjórn.
Samkvæmt skráningu félagsins er tilgangur þess hvalaskoðun og önnur þjónusta við ferðamenn.
Páll hefur verið áberandi vegna svonefnds byrlunarmáls frá 2021. Hann hefur haldið því fram að honum hafi verið byrlað áður en hann veiktist alvarlega og sími hans var síðar afritaður. Enginn hefur hins vegar verið sakfelldur fyrir byrlun og því hefur ekki verið sannað fyrir dómi að Páll hafi í raun verið byrlað.
