
Liðhlaup Jóns Gnarr alþingismanns úr þingflokki Viðreisnar er hið dularfyllsta mál. Hann bar upphaflega við stjórnleysi vegna formennsku Sigmars Guðmundssonar í þingflokknum en viðurkenndi að það mál hefði verið leyst með því að skipa Pawel Bartoszek sem formann. Þá tíundaði Jón að þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður og utanríkisráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ættu í slíkum útistöðum að honum væri ekki vært í þingflokknum. Hvorug þeirra kannast við að búa yfir óvild af neinu tagi.
Þingmaðurinn ákvað svo að mæta í Spursmál til Stefáns E. Stefánssonar. Umdeild túlkun þáttastjórnandans á ummælum Jóns var sú að hann hefði líkt Þorgerði Katrínu við Georg Bjarnfreðarson en sjálfur væri hann minnipoki í Viðreisn.
DV gerði stólpagrín að brambolti þingmannsins og taldi að það nýjasta í vaktaseríunum hefði litið dagsins ljós. Á eftir Dagvaktinni og Næturvaktinni sé Alþingisvaktin að spretta fram fullsköpuð ...