1
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

2
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

3
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

4
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

5
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

6
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

7
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

8
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

9
Innlent

Eldi Smára hafnað

10
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Til baka

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“

Segir meirihluta stjórnar ekki geta bannað fyrirvara við ársreikning

Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví GunnarssonBjörn Leví er harðorður í færslu sinni um Sósíalistaflokkinn

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, gagnrýnir Sósíalistaflokk Íslands harðlega vegna fréttar Morgunblaðsins um að trúnaðarráð flokksins hafi mælt með því að Guðnýju Benediktsdóttur verði vikið úr miðstjórn fyrir meint brot á verklagsreglum um „lýðræðislega miðstýringu.“

Í Facebook-færslu segir Björn Leví fyrirkomulagið „djöflasýru“ og dregur í efa að meirihluti stjórnar geti krafist þess að aðrir stjórnarmenn fylgi ákvörðunum hans í öllum tilvikum.

„Pælið aðeins í þessari djöflasýru (já, mér finnst það vera viðeigandi orð til þess að lýsa þessu fyrirkomulagi),“ skrifar Björn Leví og vitnar í kjölfarið í nokkrar athugasemdir úr fréttinni, til dæmis eftirfarandi athugasemd:

"verði vikið úr miðstjórn flokksins fyrir brot á verklagsreglu um lýðræðislega miðstýringu"

„Lýðræðisleg miðstýring? Hvað í fjandanum er það," skrifar Björn Leví en í frétt Morgunblaðsins kemur fram að trúnaðarráðið telji Guðnýju hafa brotið gegn reglum sem kveði á um að stjórnarmenn skuli ávallt fylgja ákvörðunum meirihlutans. Málið verður tekið fyrir á fundi miðstjórnar á fimmtudaginn.

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins neitaði Guðný að undirrita ársreikning flokksins án fyrirvara. Núverandi stjórn hefur ekki fengið skráningu í fyrirtækjaskrá vegna ágreinings um lögmæti aðalfundarins þar sem stjórnin var kjörin.

Í fréttinni segir jafnframt að hópur félagsmanna telji fundinn ekki hafa verið boðaðan með lögmætum hætti og að framkvæmdastjórn hafi með óheimilum hætti skráð fólk úr flokknum og þannig svipt það atkvæðisrétti. Málið hafi verið kært til fyrirtækjaskrár.

Segir meirihluta ekki geta stjórnað fyrirvara stjórnarmanns

Björn Leví bendir á að þótt eðlilegt geti verið að fulltrúar framfylgi lýðræðislegum niðurstöðum sé annað uppi á teningnum þegar kemur að undirritun ársreiknings.

„Þetta er ekki eitthvað sem meirihluti stjórnar getur með atkvæðagreiðslu ákveðið fyrir aðra stjórnarmenn,“ skrifar hann.

Hann segir það „gersamlega fáránlegt“ að meirihluti stjórnar geti stjórnað ákvörðun annars stjórnarmanns með þessum hætti og lýsir því sem þöggun á aðhaldshlutverki stjórnarmanna.

Björn Leví segir að fyrirvari við undirritun ársreiknings eigi að standa eða falla á eigin forsendum. Það sé hins vegar fráleitt að banna stjórnarmanni að gera slíkan fyrirvara með vísan til atkvæðagreiðslu meirihluta stjórnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar
Peningar

Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar

Nemendur leiða hörð mótmæli gegn spillingu og ríkisstjórn Albaníu
Heimur

Nemendur leiða hörð mótmæli gegn spillingu og ríkisstjórn Albaníu

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum
Innlent

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn
Myndir
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Rafskútuslys endaði með fíkniefnagrun
Innlent

Rafskútuslys endaði með fíkniefnagrun

Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka
Heimur

Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmaka

Félag kvartaði undan Vísi og Mbl en fékk ekki hljómgrunn
Innlent

Félag kvartaði undan Vísi og Mbl en fékk ekki hljómgrunn

Pólitík

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“
Pólitík

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“

Segir meirihluta stjórnar ekki geta bannað fyrirvara við ársreikning
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

Tölvunarfræðingurinn Edit tók sæti á Alþingi
Pólitík

Tölvunarfræðingurinn Edit tók sæti á Alþingi

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni
Pólitík

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

Loka auglýsingu