
Íþróttamaðurinn Hunter Woodhall notast við búnað frá Embla MedicalMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Embla Medical
Embla Medical, móðurfélag Össurar, hagnaðist um 26 milljónir Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi ársins en Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Það jafngildir um þremur milljörðum íslenskra króna.
Hagnaður félagsins nam 10 prósentum af veltu á fjórðungnum, samanborið við 11 prósent á sama tímabili árið 2025.
Sala Embla Medical á þriðja ársfjórðungi nam 250 milljónum dala.
Afkoma félagsins hefur jafnframt batnað það sem af er ári. Hagnaður Embla Medical á fyrstu níu mánuðum ársins jókst um 19 prósent frá sama tímabili í fyrra.
Félagið gerir ráð fyrir að innri vöxtur verði við neðri mörk fyrri áætlana. Embla Medical starfar á alþjóðlegum markaði á sviði stoð- og stuðningstækja.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
