
Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Fjölmiðlatorginu, útgefanda DV, hafi verið heimilt að synja Eldi Smára Kristinssyni um birtingu andsvara vegna fréttar sem birtist á DV.is 24. september.
Eldur Smári kvartaði til nefndarinnar 28. september og taldi að umfjöllunin hefði skapað villandi mynd af afstöðu hans og skrifum um málefni trans barna. Í frétt DV var hann nafngreindur sem einn þeirra sem hefði vakið máls á málefninu og vísað með hlekkjum í skrif hans.
Í sömu frétt voru höfð eftir lækni ummæli um að fordómar stöfuðu meðal annars af fákunnáttu og þekkingarleysi. Gagnrýninni umræðu var jafnframt lýst sem moldviðri sem væri þyrlað upp með rangfærslum.
Fjölmiðlanefnd taldi hins vegar að DV hefði ekki farið rangt með staðreyndir. Skrif Elds Smára sýndu að hann hefði fjallað um málefnið með sambærilegum hætti og aðrir sem nefndir voru.
Nefndin taldi því skilyrði laga um rétt til andsvara ekki uppfyllt og staðfesti synjun DV.
