1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

6
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

9
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur

Ógnandi hegðun
Maðurinn rétt fyrir handtökunaMaðurinn virtist hafa verið í miklu ójafnvægi
Mynd: Facebook-skjáskot

Maðurinn sem sást spreyja yfir listaverkið „Frjáls Palestína“ á Skólavörðustíg virðist hafa verið handtekinn eftir að lögreglu barst tilkynning um ógnandi hegðun hans gagnvart fólki á svipuðu svæði.

Lögregla handtók í gær mann á Skólavörðustíg í Reykjavík eftir að tilkynnt var um að hann veittist að fólki og sýndi ógnandi tilburði. Ekki er hægt að sjá annað en að um sama mann sé um að ræða og vakti athygli nýverið þegar hann spreyjaði yfir pólitískt listaverk með stuðningi við Palestínu á vegg við hlið Pennans Eymundsson.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir við Vísi að lögreglu hafi borist tilkynning um mann sem sýndi ógnandi hegðun í miðborginni. Lögreglumenn voru sendir á vettvang til að ræða við hann en að lokum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð eitt við Hverfisgötu til frekari viðræðna.

Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni, staðfestir einnig að lögreglumenn hafi farið á vettvang vegna málsins.

Myndband frá atvikinu hefur vakið athygli, en þar má heyra manninn öskra á fólk sem virðist vera að taka hann upp á síma sína.

Spreyjaði yfir verkið „Frjáls Palestína“

Eins og áður hefur verið greint frá urðu Jökull Sólberg Auðunsson og samstarfsfélagi hans vitni að því þegar maðurinn spreyjaði yfir listaverkið „Frjáls Palestína“ á Skólavörðustíg. Jökull birti myndband af atvikinu á Facebook.

Verkið er eftir listakonuna Mai Linnéu Juliu Mariu, sem gengur undir nafninu Julia. Hún gerði það eftir að þjóðarmorðið á Gaza hófst árið 2023 og hefur það að geyma skilaboð til stuðnings Palestínu. Þar stendur meðal annars „Frjáls Palestína“.

Julia hefur áður þurft að mála yfir skemmdir á verkinu eftir að spreyjað hefur verið á það. Hún hefur sagt vegginn vera sitt litla framlag til sameiginlegrar baráttu og leið til að takast á við það sem hún hefur horft upp á á Gaza.

Jökull og samstarfsfélagi hans, sem starfa í nágrenni við listaverkið, urðu vitni að skemmdarverkunum og skráðu þau á myndband. Í færslu sinni sagði Jökull manninn hafa spreyjað yfir veggmyndina.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Loka auglýsingu