
Lögreglan í Humberside á Englandi rannsakar óvenjulegt og alvarlegt mál þar sem kattarskotti var að sögn komið inn um bréfalúgu á heimili í borginni Hull.
Atvikið er sagt hafa átt sér stað við Appleton Road í Hull þann 18. september. Þrír einstaklingar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins, 37 ára kona og tveir karlmenn, 47 og 75 ára.
Yngri maðurinn er jafnframt grunaður um líkamsárás og eignaspjöll en sá eldri er grunaður um að hafa reynt að hafa áhrif á vitni auk áreitni. Öll þrjú voru áfram í haldi lögreglu þegar síðast fréttist.
Lucy Kevan, lögreglufulltrúi hjá Humberside-lögreglunni, segir skiljanlegt að mál af þessu tagi veki óhug og áhyggjur meðal íbúa.
Hún leggur þó áherslu á að lögregla telji að um einangrað atvik sé að ræða og að ekkert bendi til þess að almenningi stafi frekari hætta af málinu.
Rannsókn lögreglu á atvikinu stendur yfir.
