Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Kvörtun föður hafnað án þess að málið væri rannsakað nægilega

Kvörtun föður hafnað án þess að málið væri rannsakað nægilega
Barn í strætó­skýli Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Umboðs­maður Alþingis telur að ákvörðun Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála vegna með­ferðar barna­vernd­ar­þjón­ustu á til­kynn­ingu um meint and­legt ofbeldi gegn barni hafi ekki verið reist á full­nægj­andi grund­velli.

Málið laut að kvörtun föður sem hafði til­kynnt barna­vernd­ar­þjón­ustu um meint and­legt ofbeldi móður gegn barni þeirra. Barna­vernd­ar­þjón­ustan hafði meðal ann­ars litið til þess að for­sjár­mál vegna barns­ins væri á sama tíma rekið fyrir dóm­stólum.

Faðirinn leit­aði í kjöl­farið til Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála og kvart­aði yfir með­ferð barna­vernd­ar­þjón­ust­unnar. Stofn­unin komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að erindi hans upp­fyllti ekki skil­yrði til að vera tekið til frek­ari með­ferðar. Taldi stofn­unin að með­ferð barna­vernd­ar­þjón­ust­unnar hefði aug­ljós­lega ekki falið í sér ámæl­is­verða hátt­semi.

Umboðs­maður Alþingis féllst ekki á þá nið­ur­stöðu.

Taldi rannsóknina ófullnægjandi

Í áliti umboðs­manns kemur fram að það sjón­ar­mið að for­sjár­mál væri rekið fyrir dóm­stólum gæti ekki, eitt og sér og án frekara sam­hengis, talist mál­efna­legur grund­völlur fyrir nið­ur­stöðu í mál­inu.

Umboðs­maður taldi jafn­framt að Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála hefði ekki haft nægar for­sendur til að slá því föstu að með­ferð barna­vernd­ar­þjón­ust­unnar á til­kynn­ingu föð­ur­ins hefði aug­ljós­lega ekki falið í sér ámæl­is­verða hátt­semi. Til þess hefði þurft að afla frek­ari upp­lýs­inga frá barna­vernd­ar­þjón­ust­unni.

„Það er nið­ur­staða mín að ákvörðun Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála hafi ekki verið reist á full­nægj­andi grund­velli,“ segir í áliti umboðs­manns.

Umboðs­maður beindi þeim til­mælum til stofn­un­ar­innar að taka erindi föð­ur­ins til nýrrar með­ferðar, óski hann eftir því, og leysa þá úr mál­inu í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið sem rakin eru í álit­inu.

Þá var stofn­un­inni jafn­framt gert að taka fram­vegis mið af sömu sjón­ar­miðum þegar sam­bæri­leg mál koma til úrlausnar.

Umboðs­maður lauk mál­inu með áliti 10. sept­em­ber 2026. Álitið var birt á vef emb­ætt­is­ins 19. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Brotin áttu sér stað á fimm ára tímabili þegar ferill Russells Brand stóð sem hæst á fyrsta áratug aldarinnar.
Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Innlent

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þyngst.
Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur