Það er ekki á hverjum degi sem leðurblaka sést á flugi hér á landi, en ein slík sást flögra um yfir Fellabæ í gær.
Það var Kolbrún Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, sem kom auga á leðurblökuna þegar hún flaug fram hjá eldhúsglugga hennar. Hún náði stuttu myndskeiði af dýrinu áður en það hvarf sjónum hennar.
„Þetta er frekar lítil leðurblaka en ég veit ekki hvað varð svo af henni eftir að ég missti sjónar á henni,“ segir Kolbrún í samtali við Austurfrétt.
Leðurblökur hafa stöku sinnum borist til landsins með skipum, meðal annars til Norðfjarðar fyrir nokkrum árum. Kolbrún telur þó ólíklegt að dýrin geti flogið hingað til lands af eigin rammleik.
Kolbrún brýnir fyrir fólki að halda sig frá leðurblökunni og snerta hana ekki, hvort sem hún er lifandi eða dauð. Ef hún finnst ætti fólk að hafa samband við lögreglu, sem vinnur með Matvælastofnun að slíkum málum.
Leðurblökur geta borið með sér alvarlega sjúkdóma, meðal annars hundaæði, sem ekki hefur greinst hér á landi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir