Breska stórblaðið The Sunday Times hefur tekið saman fimm íslenska fossa sem blaðið telur meðal þeirra tilkomumestu sem ferðamenn geta heimsótt hér á landi. Í umfjölluninni segir að Ísland eigi fáa sína líka þegar kemur að fossum og bent er á að þeir séu taldir vera um 10 þúsund talsins.
Kirkjufellsfoss
Kirkjufellsfoss á Snæfellsnesi er sagður einn helsti segull svæðisins. Sérstök áhersla er lögð á samspil fossins og Kirkjufells í bakgrunni, sem hefur gert staðinn afar vinsælan meðal ljósmyndara. Aðgengi að fossinum þykir jafnframt gott.
Dynjandi
Dynjandi á Vestfjörðum fær mikið lof en fossinn fellur um 100 metra niður í Arnarfjörð. Á gönguleiðinni að honum er gengið fram hjá sex minni fossum og segir blaðið stærð Dynjanda og umhverfið gera heimsóknina sérstaklega eftirminnilega.
Seljalandsfoss
Seljalandsfoss kemst á listann ekki síst vegna þess að hægt er að ganga á bak við fossinn. Blaðið bendir á að fossinn sé auðveldlega aðgengilegur frá þjóðvegi 1 en gestir verði þó að gera ráð fyrir að blotna.
Svartifoss
Svartifoss í Vatnajökulsþjóðgarði vekur sérstaka athygli vegna dökkra stuðlabergsmyndana sem umlykja fossinn. Fossinn fellur um 20 metra og líkir blaðið stuðlunum við pípur í risavöxnu kirkjuorgeli.
Gufufoss
Gufufoss við Seyðisfjörð er loks sagður sérstaklega heillandi. Hann fellur um 27 metra og vekur úðinn frá fossinum athygli, ekki síst þegar sólarljósið myndar regnboga yfir svæðinu.





















Athugasemdir