1
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

2
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

3
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

4
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

5
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

6
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

7
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

8
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

9
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

10
Heimur

Kristur á krossinum varð kaþólskum presti að bana

Til baka

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

Matthías Freyr hvetur karlmenn til að opna sig

Matthías Freyr Matthíasson 2
Matthías Freyr Matthíasson
Mynd: Aðsend

Matthías Freyr Matthíasson greindist með ristilkrabbamein í apríl eftir að hafa glímt við mikla og reglulega kviðverki um nokkurt skeið. Skömmu síðar kom í ljós að krabbameinið hafði dreift sér í lifrina.

Matthías hefur nú stigið fram í aðsendri grein á Vísi og sagt frá veikindum sínum í þeirri von að reynsla hans geti orðið öðrum hvatning til að sækja sér stuðning.

„Það var frekar mikið þungt högg í magann í apríl síðastliðnum, eftir nokkurra vikna og mánaða vesen með reglulegum miklum kviðverkjum og læknaheimsóknum, að fá símtal þar sem mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein,“ segir Matthías.

Honum var sagt að hann væri ungur miðað við marga sem greinast með sjúkdóminn en hann er aðeins 46 ára.

„Mér fannst það lítil huggun á þeim tímapunkti í ferlinu,“ segir hann.

Staðan varð enn alvarlegri þegar rannsóknir leiddu í ljós meinvörp í lifur. Matthías segir greininguna hafa kallað fram erfiðar spurningar um framtíðina, fjölskylduna og næstu mánuði og ár.

„Þetta er staðan og ég mun gera allt sem er í mínu valdi til að berjast og sigra þetta og legg allt mitt traust á okkar færu lækna og læknavísindin.“

Ný meinvörp fundust

Sumarið fór að stórum hluta í tvær aðgerðir og bata eftir þær. Aðgerðirnar gengu vel en síðar kom bakslag þegar ný meinvörp fundust í lifrinni. Lyfjameðferðinni var því breytt og gerð öflugri. Sú meðferð stendur nú yfir.

Matthías segir stuðning fjölskyldu og vina hafa verið ómetanlegan en jafningjastuðning hafi einnig reynst honum sérstaklega mikilvægur.

Hann nefnir þar Ljósið og Kraft og hvetur aðra krabbameinsgreinda til að kynna sér starfsemi félaganna.

„Það er svo gott að hitta einstaklinga sem hafa gengið í gegnum eða eru að ganga í gegnum svipaða hluti og maður sjálfur, til að spegla, til að gleðjast og til að fræðast og styrkja hvert annað.“

Matthías segir fyrsta skrefið einfaldlega vera að mæta og þiggja þann stuðning sem stendur til boða.

„Lífið er núna!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála
Innlent

Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála

„Ég sætti mig ekki við að ábyrgðin sé sífellt færð yfir á þolendur ofbeldis“
Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni
Pólitík

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar
Heimur

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru
Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands
Innlent

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð
Heimur

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku
Innlent

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku

Óttast að El Niño-fyrirbærið verði það öflugasta í þúsund ár
Heimur

Óttast að El Niño-fyrirbærið verði það öflugasta í þúsund ár

Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

Matthías Freyr hvetur karlmenn til að opna sig
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu
Myndir
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

„Það besta sem ég hef upplifað“
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

Loka auglýsingu