
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og vopnalagabrot sem hann er sakaður um að hafa framið í Reykjavík á tímabilinu frá október 2025 til apríl 2026. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember.
Samkvæmt ákæru var maðurinn fyrst stöðvaður í október í fyrra og fundust þá 2,41 grömm af maríhúana og hnúajárn við öryggisleit lögreglu.
Hann er jafnframt ákærður fyrir að hafa ítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Í janúar er honum gefið að sök að hafa ekið um Stekkjarbakka fullur og undir áhrifum fíkniefna. Aðeins sex dögum síðar hafi hann aftur ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og eiturlyfja. Akstrinum lauk með umferðaróhappi á Breiðholtsbraut.
Í febrúar fundu lögreglumenn samkvæmt ákærunni tvö stunguvopn á manninum við Þangbakka. Síðar fundust 1,37 grömm af maríhúana í veski hans á lögreglustöðinni í Kópavogi.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir tvö sambærileg umferðarlagabrot í apríl. Í báðum tilvikum var han drukkinn og undir áhrifum fíkniefna og var hann sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið krefst refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og sviptingar ökuréttar. Þá er krafist upptöku á samtals 3,78 grömmum af maríhúana, hnúajárni og tveimur stunguvopnum.