
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Alls voru 74 mál skráð í kerfi lögreglu á tímabilinu og einn var vistaður í fangaklefa þegar dagbókin var tekin saman.
Alvarlegasta útkall næturinnar barst vegna manns sem sagður var vera með hníf á lofti á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Lögregla hafði uppi á manninum og handtók hann.
Einnig var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni. Einn var handtekinn vegna málsins og vistaður í fangaklefa. Þá var ökumaður handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögregla þurfti jafnframt að hafa afskipti af manni sem var til vandræða í líkamsræktarstöð og var honum vísað á brott. Ölvuðum einstaklingi, sem var til vandræða á veitingastað, var sömuleiðis vísað út.
Tilkynnt var um umferðarslys í póstnúmerum 220 og 112 en engin slys urðu á fólki. Þá var óvelkomnum einstaklingi vísað úr heimahúsi í póstnúmeri 270.
Nokkrir ökumenn voru auk þess sektaðir fyrir ýmis brot á umferðarlögum.
