Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til ungs aldurs hans

Héraðsdómur Norðurlands eystra
Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra

Ungur maður frá Akureyri hefur verið dæmdur í 90 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir fíkniefna­lagabrot og peninga­þvætti auk þess sem hann var sektaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og hrað­akstur. Dómur féll í Héraðs­dómi Norður­lands vestra 7. október.

Málið á rætur að rekja til 9. mars 2025 þegar maðurinn, sem er fæddur árið 2004, var stöðvaður við akstur. Hann ók á 109 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði var 90 kíló­metrar á klukku­stund. Í blóðsýni hans mældist jafnframt tetrahýdrókannabínól, THC.

Við rannsókn málsins kom í ljós að maðurinn hafði í vörslum sínum töluvert magn fíkniefna sem ætluð voru til sölu og dreifingar. Um var að ræða tæplega 176 grömm af kannabis­blönduðu efni, tíu MDMA töflur, 8,75 grömm af maríhúana og fjögur hylki með kannabis­blönduðum vökva.

Hann var einnig sakfelldur fyrir peninga­þvætti. Samkvæmt ákæru hafði hann frá september 2024 fram í mars 2025 aflað sér og geymt rúmlega 1,5 milljónir króna í ágóða af fíkniefna­sölu. Lögregla lagði hald á 245 þúsund krónur í bifreið hans.

Maðurinn játaði brotin skýlaust. Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til ungs aldurs hans og játningar, en jafnframt til þess að magn fíkni­efnanna var umtals­vert.

Fangelsis­refsingin er skilorðs­bundin í tvö ár. Þá var maðurinn sektaður um 150 þúsund krónur og sviptur ökuréttindum í sex mánuði.

Fíkni­efnin og 245 þúsund krónurnar voru gerð upptæk. Þá þarf maðurinn að greiða tæplega 550 þúsund krónur í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra