Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Mynd: Víkingur

Alls voru 86 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu frá klukkan 17 í gær og þar til dagbókin var rituð. Átta einstaklingar dvöldu þá í fanga­klefa.

Nokkuð var um alvarleg umferðar­lagabrot. Ungur ökumaður var stöðvaður á Suður­landsvegi eftir að hafa mælst á 151 kílómetra hraða á klukku­stund þar sem hámarks­hraði er 90. Hann á von á eins mánaðar sviptingu ökuréttinda.

Í Kópavogi sinnti ökumaður ekki stöðvunar­merkjum lögreglu og hófst eftirför. Maðurinn ók langt yfir leyfi­legum hámarks­hraða og gegn rauðu ljósi. Þegar hann stöðvaði bifreiðina reyndi hann að flýja á fæti en lögreglu­menn náðu honum fljótlega. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna auk sölu og dreifingar fíkniefna. Maðurinn var hand­tekinn og vistaður í fanga­geymslu.

Flúði eftir umferðarslys

Tilkynnt var um umferðar­slys í Hafnar­firði þar sem ökumaður sem talinn er hafa valdið slysinu yfirgaf vettvang. Lögregla hóf leit að bifreið hans og fannst hún síðar í Garðabæ. Ökumaðurinn var þá farinn og búið var að fjarlægja skráningar­merki bifreiðarinnar. Málið er til rann­sóknar.

Önnur eftirför varð í Fossvogi þegar ökumaður sinnti ekki stöðvunar­merkjum lögreglu. Þegar bifreiðin stöðvaðist reyndi maðurinn að hlaupa undan en var hand­tekinn eftir stuttan eltingar­leik. Hann er grunaður um ölvunar­akstur.

Átta aðrir ökumenn voru jafnframt hand­teknir víðs vegar um höfuð­borgar­svæðið vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Samkvæmt lögreglu virtu þeir allir að vettugi stöðvunar­merki hennar.

Réðst á lögreglumenn

Lögreglu­menn höfðu einnig afskipti af ölvuðum einstaklingi vegna líkams­árásar í miðborg Reykja­víkur. Maðurinn brást illa við afskiptunum og réðst að lögreglu­mönnum með höggum og spörkum.

Hann var hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa. Við leit á manninum fannst töluvert magn efna sem grunur leikur á að séu fíkniefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum