Eva Katrín Baldursdóttir, annar eigandi tískuvöruverslunarinnar Andrá, og Ragnar Jón Hrólfsson, fréttamaður á RÚV, hafa sett íbúð sína við Reynimel 92 í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu.
Um er að ræða fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi sem reist var árið 1966. Ásett verð eignarinnar er 89,9 milljónir króna.
Samkvæmt fasteignaauglýsingu hefur íbúðin verið mikið endurnýjuð og er henni lýst sem sérlega fallegri. Eignin stendur á eftirsóttum stað í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Vesturbænum.
Staðsetningin er sérstaklega dregin fram í sölulýsingu en stutt er í ýmsa þjónustu. Vesturbæjarlaug og Melabúðin eru í göngufæri auk skóla og leikskóla. Þá eru góðar göngu- og hjólaleiðir í nágrenninu.
Reynimelur er í hjarta Vesturbæjar og hefur svæðið lengi verið vinsælt meðal fjölskyldna, meðal annars vegna nálægðar við skóla, þjónustu og útivistarsvæði.
Farið er fram á tæpar 90 milljónir króna fyrir íbúð Evu Katrínar og Ragnars Jóns.

