1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

3
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

8
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

9
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

„Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyrirrúmi“

Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Þorvaldur Davíð KristjánssonEr borgarfulltrúi
Mynd: JOHN MACDOUGALL / AFP

Miklar áhyggjur hafa skapast meðal íbúa í Laugarneshverfi vegna aukinnar umferðar og hraðaksturs í nágrenni Laugarnesskóla eftir að framkvæmdir hófust á Reykjavegi. Íbúar lýsa meðal annars atvikum þar sem nærri hafi verið ekið á gangandi vegfarendur og kalla eftir tafarlausum aðgerðum.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, vakti athygli á málinu í hverfishópiLaugarneshverfis. Hann segir fjölskyldu sína hafa orðið vara við hraðakstur síðustu daga, sérstaklega á Gullteigi og Kirkjuteigi.

„Mig langar að hvetja alla til að gæta vel að hraðanum í kringum skólann. Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyrirrúmi,“ skrifar Þorvaldur.

Hann hvetur jafnframt íbúa til að bregðast við verði þeir varir við hraðakstur og minna ökumenn á að hægja á sér.

Vill fá lögregluna í hraðaeftirlit

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, fulltrúi Laugardals í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur, tók undir áhyggjur Þorvaldar. Hún segir ábendingu þegar hafa verið komið á framfæri við borgina og að hún hafi jafnframt haft samband við lögreglu.

„Hér þarf að drita upp skiltum eins fljótt og hægt er. Ég sit hérna inni í stofu á Kirkjuteig þegar ég skrifa þetta og ég á ekki orð yfir hvernig fólk keyrir beint fyrir framan skóla,“ skrifar Margrét Rós.

Hún lýsir því meðal annars að hafa séð ökumann stórs jeppa aka hratt um svæðið á meðan hann var í símanum.

„Hvað er að þessu samfélagi? Risastórir jeppar langt yfir hámarkshraða við skólalóð! Sá einn á Dodge Ram í símanum brunandi,“ skrifar hún.

Margrét Rós segir lögreglu ekki hafa getað brugðist strax við en að óskað hafi verið eftir skriflegum ábendingum frá íbúum.

„Við verðum bara að fá lögregluna í hraðaeftirlit hingað,“ segir hún.

Að hennar sögn eiga framkvæmdirnar á Reykjavegi að standa til 10. nóvember. Hún segir borgina jafnframt vera að skoða hvort hægt sé að grípa til frekari ráðstafana til að hægja á umferð.

Börn þurfa að þvera Gullteig

Fleiri íbúar lýsa mikilli umferð og hættulegum aðstæðum í hverfinu. Fram hafa komið frásagnir af fólki sem hafi nærri orðið fyrir bílum á göngu um Teigana og af barni sem beið við gangbraut á meðan þrettán bílar óku fram hjá án þess að stöðva.

Katrín Atladóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekur undir áhyggjurnar og bendir sérstaklega á áhrif breytinganna á skólabörn.

„Það er búinn að vera gangbrautarvörður við Reykjaveg en nú er búið að færa þessa umferð á Gullteig sem mörg börn þurfa að þvera til að komast í og úr skóla,“ skrifar Katrín.

Íbúar hafa jafnframt bent á að umferð um Gullteig hafi þyngst verulega og bílaraðir myndist við gangbrautina hjá skólanum.

Kallar eftir áberandi skiltum

Rósa Birgitta Ísfeld söngkona hefur einnig lýst áhyggjum af aðstæðum í hverfinu. Hún bendir meðal annars á að tveir ljósastaurar við fiskbúðina séu óvirkir og að það hafi áhrif á sýnileika.

„Sá næstum ekki mann þegar ég tók hægri beygju þar,“ skrifar Rósa.

Hún lýsir einnig atviki þar sem ökumaður Teslu tók að hennar sögn hraða beygju inn á Gullteig.

„Mjög slæm umferð tók ein Tesla hraða beygju inn á Gullteig frá skólanum og ég var inn í þrengingunni. Þessi bílstjóri fattaði held ég ekki þrenginguna,“ skrifar hún.

Birkir Fjalar Viðarsson, söngvari I Adapt og hlaðvarpsþáttastjórnandi, telur að áberandi merkingar gætu hjálpað til við að draga úr hraða.

„Ég sé t.d. engin sérstök skilti til að minna þessa nýju nágranna okkar á að þeir eru komnir inn í íbúðarhverfi hvar börnin ráða,“ skrifar Birkir.

Hann segir skilti geta haft meiri áhrif á suma ökumenn en umhverfið sjálft.

„Ég segi skilti af því að margir ökumenn taka meira marka á þeim en raun-umhverfi sínu, því miður.“

Íbúar kalla nú eftir auknum merkingum, hraðaeftirliti lögreglu og frekari aðgerðum borgarinnar meðan framkvæmdir standa yfir. Áherslan er ekki síst á öryggi barna sem þurfa daglega að fara yfir götur þar sem umferð hefur aukist verulega vegna framkvæmdanna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

„Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyrirrúmi“
Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Loka auglýsingu