Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Góð samskipti og tilfinn­inga­legt öryggi geta skipt verulegu máli þegar kemur að ánægju fólks í langtíma­samböndum

Par að kyssast
Par að kyss­ast Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Klara Kulikova/Unsplash

Góð samskipti og tilfinningalegt öryggi geta skipt verulegu máli þegar kemur að ánægju fólks í langtíma­samböndum. Nýleg rannsókn sem birt var í vísinda­tímaritinu Family Process bendir til þess að bætt samskipti og aukið tilfinningalegt öryggi tengist meiri ánægju í samböndum.

Sambands- og kynlífs­ráðgjafinn Tammy Nelson segir jafnframt að sambönd þróist með tímanum og að fólk þurfi að leggja rækt við þau. Hún nefnir fimm algeng mistök sem geti smám saman dregið úr nánd og tengslum para.

1. Að telja sig vita allt um makann

Nelson segir forvitni mikil­vægan þátt í ástar­samböndum. Þegar fólk telur sig þegar vita hvað makinn hugsar, vill eða hefur áhuga á geti það hætt að spyrja spurninga og sýna honum raun­verulegan áhuga.

Smekkur, langanir og fram­tíðarsýn fólks geti hins vegar breyst með árunum. Hún hvetur fólk því til að halda áfram að spyrja maka sinn hvað hann vilji, hvert hann stefni og hvernig hann sjái fram­tíðina fyrir sér.

2. Að forðast erfið samtöl

Þögn er ekki endilega merki um að allt sé í góðu lagi. Að mati Nelson geta pör sem forðast ágreining og erfið málefni jafnvel verið í viðkvæmari stöðu en þau sem rífast en ræða málin opinskátt.

Hún ráðleggur fólki sérstak­lega að velta fyrir sér hvaða umræðu­efni það forðast. Þar geti til dæmis verið um að ræða fjármál, kynlíf eða önnur viðkvæm mál. Mikilvægt sé að skapa svigrúm fyrir slík samtöl.

3. Að einblína á það sem er að í kynlífinu

Þegar rætt er um kynlíf telur Nelson árangurs­ríkara að leggja áherslu á það sem gengur vel en að telja upp það sem makinn gerir ekki eða það sem vantar.

Hún ráðleggur pörum að segja hvort öðru hvað þeim líkar og hvað þau vilji upplifa meira af. Þannig sé hægt að byggja áfram á því sem þegar virkar í stað þess að skapa varnar­viðbrögð og átök.

4. Að festast í daglegum rekstri sambandsins

Reikningar, heimilis­störf, börn, vinna og önnur verkefni geta orðið fyrirferðar­mikill hluti sambands. Nelson kallar þetta viðhaldsham og segir hann nauðsyn­legan.

Hann megi þó ekki taka algjör­lega yfir. Pör þurfi einnig að vera í því sem hún kallar vaxtarham, þar sem þau prófa nýja hluti, skapa sameiginlegar upplifanir og brjóta upp hversdags­leikann. Jafnvægi þurfi að vera milli stöðug­leika og nýrra upplifana.

5. Að halda jákvæðum tilfinningum fyrir sig

Síðustu mistökin felast í því að finna fyrir væntumþykju og tengingu við makann án þess að tjá hana.

Nelson hvetur fólk til að segja maka sínum þegar hugsunin um hann vekur hlýju, gleði eða öryggi. Einföld orð um slíkar tilfinningar geti haft mikil áhrif.

Að hennar mati byggist sterkt lang­tímasamband því ekki eingöngu á samhæfni heldur stöðugri athygli, samskiptum og vilja beggja aðila til að halda áfram að kynnast hvort öðru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.
Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“