
Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj hafa verið dæmdir í sjö ára fangelsi hvor fyrir aðild sína að svokölluðu Dettifossmáli. Magnús Gauti Magnússon og Björgvin Þór Björnsson hlutu fimm ára fangelsi hvor. Dómarnir voru kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot vegna innflutnings á 14.100 millilítrum af amfetamínbasa með 47 til 48 prósenta styrkleika. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi.
Fíkniefnin voru falin í fjórum Absolut-vodkaflöskum í tösku um borð í Dettifossi, sem kom frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands í apríl.
Sævari og Kastriot var gefið að sök að hafa skipulagt innflutninginn en Magnús og Björgvin að hafa tekið við efnunum í Þýskalandi og komið þeim um borð.