1
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

2
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

3
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

4
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

5
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

6
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

7
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

8
Heimur

Kristur á krossinum varð kaþólskum presti að bana

9
Heimur

Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla

10
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

Til baka

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

„Hugsandi fólk hlýtur að spyrja sig hvort ekki hrikti í fullveldinu“

Jim Ratcliffe
Jim RatcliffeRatcliffe á um 1,4% af flatarmáli Íslands
Mynd: RUDY CAREZZEVOLI / GETTY IMAGES VIA AFP

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi gagnrýnir mikil landeignarítök breska auðkýfingsins Jim Ratcliffe á Íslandi og spyr hvort þau geti ógnað fullveldi landsins.

Í Facebook-færslu sinni bendir Herdís á að Ratcliffe, sem er einn auðugasti maður heims, eigi um 1.500 ferkílómetra lands á Íslandi. Fyrirtæki hans, Six Rivers, fer jafnframt með víðtæk réttindi og umráð tengd laxveiði og náttúruvernd á Norðausturlandi.

Meðal þeirra 30 jarða sem Ratcliffe á eru Grímsstaðir á Fjöllum. Hann hefur einnig umráð yfir fimm þekktum laxveiðiám á Norðausturlandi: Selá, Hofsá, Hafralónsá, Miðfjarðará og Vesturdalsá.

Herdís telur ástæðu til að ræða hvaða áhrif slík eignarhald og ítök geti haft á samfélagið og stjórnskipan landsins. Hún áætlar að ef aðeins 10–15 prósent flatarmáls Norðausturkjördæmis séu byggilegt láglendi gæti Ratcliffe átt hátt í helming þess lands.

„Hugsandi fólk hlýtur að spyrja sig hvort ekki hrikti í fullveldinu þegar lunginn af heilu kjördæmi er kominn í eigu erlends auðkýfings (eða félaga í hans eigu) því ef gert er ráð fyrir að um 10–15% af flatarmáli kjördæmisins sé raunverulegt láglendi, þar sem hægt er að búa, má áætla að Ratcliffe eigi hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi. Hann er fjórði stærsti landeigandi á Íslandi, á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni.“

Líkir stöðunni við Sturlungaöld

Herdís líkir stöðu Ratcliffe við valdamikla goða á Sturlungaöld, þegar fáar valdaættir söfnuðu undir sig stórum landsvæðum og höfðu mikil áhrif á líf fólks.

Hún vísar í verk Sigurðar Nordals, Íslenska menningu, þar sem segir að völd goðanna hafi verið „forráð manna en ekki landssvæða“.

Í færslunni gagnrýnir Herdís jafnframt heimsókn þingmanna til Six Rivers, áður en þeir fóru í nætursund eins og frægt er orðið. Ratcliffe tók ekki sjálfur á móti hópnum, heldur íslenskur fulltrúi hans.

Hún spyr hvort þingmennirnir hafi velt fyrir sér stöðu landsins sem fullvalda ríkis og áhrifum þess að erlendur auðkýfingur eigi stór landsvæði og hafi víðtæk viðskiptahagsmuni í kjördæminu.

Herdís varar við því að auðlegð og staðbundin áhrif geti skapað möguleika á að hafa áhrif á stjórnmál og ákvarðanir sem snerta hagsmuni almennings.

„Hugsuðu þeir um landið sem yfirráðasvæði íslensks ríkisvalds? Hugsuðu þeir um stjórnskipun Íslands og fólkið sem tilheyrir ríkinu?“ spyr hún.

Hún segir að lokum athyglisvert að þessar spurningar virðist ekki hafa vakið mikla umræðu meðal þingmanna eða fjölmiðla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni
Pólitík

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar
Heimur

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru
Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð
Heimur

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku
Innlent

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku

Óttast að El Niño-fyrirbærið verði það öflugasta í þúsund ár
Heimur

Óttast að El Niño-fyrirbærið verði það öflugasta í þúsund ár

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu
Myndir
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

Furðulegt grín endaði með lögregluheimsókn
Innlent

Furðulegt grín endaði með lögregluheimsókn

Arnþór Örlygsson er fallinn frá
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru
Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands
Innlent

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku
Innlent

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku

Furðulegt grín endaði með lögregluheimsókn
Innlent

Furðulegt grín endaði með lögregluheimsókn

Loka auglýsingu