
Kaþólskur prestur í Ekvador lést eftir að stór kross féll yfir hann þar sem hann leiddi messu sem streymt var í beinni útsendingu á netinu. Myndskeið af atvikinu hefur dreifst víða á samfélagsmiðlum. Erkibiskupsdæmið í Guayaquil staðfesti andlát prestsins í dag.
Atvikið átti sér stað í gær, laugardaginn 17. október í kirkjunni Nuestra Señora del Perpetuo Socorro í borginni Guayaquil. Presturinn Patricio Alfredo Sanchez Molinari var að ávarpa kirkjugesti þegar krossinn féll yfir hann.
Á myndskeiðinu sést presturinn messa við altarið þegar stóri krossinn, sem festur var á vegginn fyrir aftan hann, losnar skyndilega og fellur niður með miklum þunga. Presturinn hverfur sjónum eftir höggið og krossinn liggur síðan yfir altarissvæðinu.
Kirkjan staðfestir andlátið
Erkibiskupsdæmið í Guayaquil staðfesti andlát prestsins í færslu á samfélagsmiðlum í dag.
„Við tilkynnum að ástkær faðir okkar, Patricio Alfredo Sanchez Molinari, CSsR, sem þjónaði sem sóknarprestur í kirkju Frúar eilífrar hjálpar í miðborgarprestakallinu, er farinn í hús föðurins til að njóta nærveru hans og dýrðar,“ sagði í tilkynningunni.
Þar var einnig farið með bæn fyrir hinum látna:
„Veittu honum eilífa hvíld, Drottinn, og lát eilíft ljós lýsa honum. Megi hann hvíla í friði. Amen.“
Sanchez Molinari var sóknarprestur kirkjunnar og jafnframt meðlimur í reglu lausnara, Congregatio Sanctissimi Redemptoris.
Atvikið má sjá hér fyrir neðan en viðkvæmir eru varað við myndefninu.
A priest was killed in Ecuador after a massive cross collapsed on him during services. The incident happened in front of worshippers and was captured on a livestream. https://t.co/0ia3NKTsjG
— Open Source Intel (@Osint613) October 18, 2026
