
Bæjaryfirvöld í La Laguna á Tenerife hafa samþykkt nýjar reglur um umgengni á ströndum og við náttúrulaugar sveitarfélagsins. Meðal annars verður bannað að reykja, gista og tjalda á svæðunum.
Reglurnar hlutu endanlegt samþykki 7. október og ná meðal annars til vinsælla baðstaða í Bajamar, Punta del Hidalgo, Jover og La Barranquera. Markmiðið er að auka öryggi, draga úr mengun og vernda lífríki við ströndina.
Samkvæmt reglunum verða allar strendur og náttúrulaugar á vegum sveitarfélagsins reyklaus svæði. Jafnframt verður óheimilt að skilja eftir rusl eða annan úrgang.
Þá verður bannað að nota sápu, sjampó og sambærilegar hreinlætisvörur í almenningssturtum og á baðsvæðum. Er því ætlað að koma í veg fyrir að mengandi efni berist í sjóinn.
Tjaldstæði og gistinætur verða sömuleiðis óheimil á þeim svæðum sem reglurnar ná til. Notkun hátalara og annars hljóðbúnaðar sem veldur öðrum ónæði verður einnig bönnuð, nema í neyðartilvikum eða á viðburðum sem hafa fengið sérstakt leyfi.
Viðurlög verða við brotum og fer þyngd þeirra eftir alvarleika hvers tilviks.
Samhliða hertum reglum hyggjast yfirvöld bæta aðgengi að baðstöðunum, meðal annars með sérútbúnum hjólastólum og aðgengilegum salernum.
Reglurnar gilda þó aðeins innan sveitarfélagsins La Laguna
