
Þrjár breskar systur sem fundust látnar í sjónum undan Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi. Þetta er niðurstaða dánardómstjóra sem kynnt var við rannsókn málsins á fimmtudag.
Lík systranna fundust í sjónum við Brighton snemma morguns 13. maí en vindasamt var á svæðinu þegar þær létust. Konurnar hétu Jane Adetoro, 36 ára, Christina Walters, 32 ára, og Rebecca Walters, 31 árs.
Penelope Schofield dánardómstjóri komst að þeirri niðurstöðu að systurnar hefðu farið í sjóinn með það í huga að svipta sig lífi.
Þær höfðu komið til Brighton frá London seint kvöldið áður með leigubíl sem hafði verið pantaður fyrir fram. Síðast sást til þeirra á lífi á ströndinni um klukkan þrjú um nóttina.
Fram kom við rannsókn málsins að systurnar kunnu ekki að synda. Þær gengu út í sjóinn í myrkri þegar aðstæður voru erfiðar.
Systurnar bjuggu saman í íbúð í London og að sögn dánardómstjóra lifðu þær mjög einangruðu lífi. Ekki liggur fyrir hvers vegna þær ákváðu að svipta sig lífi eða hvers vegna Brighton varð fyrir valinu.
Daginn áður höfðu þær heimsótt svæðið þar sem móðir þeirra svipti sig lífi í stöðuvatni 16 árum fyrr. Lögregla hefur ekki fundið neitt sem bendir til saknæms athæfis í tengslum við dauða systranna.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.