
Ný skýrsla um íslenskan loðdýraiðnað metur að nettókostnaður loðdýraræktar fyrir íslenskt samfélag hafi numið 981 milljón króna árið 2025. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar á málþinginu Af minkum og mönnum í Norræna húsinu á morgun, 9. október.
Skýrslan ber heitið A full-cost account of the Icelandic fur industry og var unnin af hagfræðingunum Griffin Carpenter og Artūrs Kaņepājs fyrir Humane World for Animals og Samtök um dýravelferð á Íslandi. Þar er efnahagslegt framlag loðdýraræktar borið saman við kostnað sem tengist meðal annars umhverfisáhrifum, ágengum minkum og lýðheilsu.
Samkvæmt skýrslunni nam efnahagslegt framlag greinarinnar 86 milljónum króna árið 2025, en þegar metinn umhverfis- og lýðheilsukostnaður hefur verið dreginn frá hafi nettókostnaðurinn numið 981 milljón króna. Í þeirri upphæð er kostnaður vegna dýravelferðar ekki metinn til fjár.
Artūrs Kaņepājs, annar höfunda skýrslunnar, mun kynna niðurstöðurnar á málþinginu og fjalla um efnahagslegt umfang og samfélagslegan kostnað loðdýraræktar hér á landi.
Segja greinina hafa lítið efnahagslegt umfang
Í skýrslunni kemur fram að virðisauki loðdýraræktar hafi verið um 86 milljónir króna árið 2025, sem jafngildi um 0,002 prósentum af íslenska hagkerfinu. Þá hafi um tíu stöðugildi verið tengd greininni á árinu.
Höfundar skýrslunnar segja jafnframt að loðdýrarækt hafi verið rekin með tapi öll ár frá 2014 til 2025 að árinu 2021 undanskildu. Samkvæmt skýrslunni hafi ríkisstyrkir haft áhrif á afkomuna árið 2021.
Framleiðsla minkaskinna hafi einnig dregist verulega saman á tímabilinu. Hún hafi minnkað úr um 200 þúsund skinnum árið 2015 í um 40 þúsund árið 2025, eða um 80 prósent. Tekjur greinarinnar hafi á sama tíma minnkað meira en tífalt.
Fjallað um dýravelferð og áhrif minksins
Á málþinginu verður einnig fjallað um dýravelferð, sögu minksins hér á landi og áhrif hans á íslenska náttúru.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, mun fjalla um dýravelferð í tengslum við loðdýrarækt og velferð minka. Róbert A. Stefánsson, líffræðingur, fjallar um minkinn, sögu hans og áhrif í íslenskri náttúru.
Mike Moser, fyrrverandi framkvæmdastjóri British Fur Trade Association, flytur einnig erindi. Moser starfaði í meira en áratug innan alþjóðlega loðdýraiðnaðarins en yfirgaf greinina árið 2018 og hefur síðan talað fyrir því að loðdýrarækt og verslun með loðfeldi verði lögð af.
Þá mun Sigurborg Ósk Haraldsdóttir fjalla um hlutverk sveitarfélaga í dýravelferð.
Í pólitísku pallborði verður rætt um framtíð loðdýraræktar á Íslandi. Þar taka þátt fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Miðflokksins, Vinstri grænna, Pírata og Sósíalistaflokksins. Katrín Oddsdóttir verður fundarstjóri.
Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson sjá um tónlistaratriði og sýndar verða stuttmyndir eftir listakonuna Anahitu Babaei.
Málþingið fer fram í Norræna húsinu 9. október.
