Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

„Við ákváðum því að fagna á besta mögulega mátann“

Linda Ben í sólinni í Tyrklandi
Linda Ben í sól­inni í Tyrk­landi Mynd: Linda Ben/Instagram

Áhrifavaldurinn og bakarinn Linda Benedikts­dóttir, betur þekkt sem Linda Ben, skellti sér á dögunum til Tyrklands ásamt fjöl­skyldunni þar sem sérstakt tilefni var til að fagna.

Foreldrar Lindu urðu bæði sextug á árinu og var ákveðið að halda upp á tímamótin með sameiginlegri fjöl­skylduferð í sólina. Linda birti fallegar myndir úr ferðinni á samfélags­miðlum og ljóst er að fjöl­skyldan naut sín vel saman.

„Tyrkland var æði!“ skrifaði Linda og sagði tilefni ferðarinnar hafa verið sérstak­lega ánægjulegt þar sem bæði móðir hennar og faðir fögnuðu sextugsafmæli á árinu.

„Við ákváðum því að fagna á besta mögulega mátann og fórum öll fjöl­skyldan saman í sólina að njóta,“ bætti hún við og sagði það ótrúlega dýrmætt að fá að eiga slíkar stundir saman.

Með Lindu í ferðinni voru meðal annars eigin­maður hennar, Ragnar Einarsson, og börn þeirra. Linda og Ragnar eiga tvö börn saman en Ragnar starfar sem forstöðu­maður færslu­hirðingar Lands­bankans.

Linda hefur verið áberandi á samfélags­miðlum undan­farin ár, ekki síst fyrir uppskriftir sínar og bakstur. Hún gaf út bókina Kökur árið 2020, sem naut mikilla vinsælda, og hefur jafnframt samið uppskriftir og tekið myndir fyrir Köku­bækling Nóa Síríus. Þá gerði hún sjónvarps­þátt sem sýndur var á Stöð 2 fyrir jólin 2024.

Fjöl­skyldan virðist hafa nýtt tímann í Tyrklandi vel og naut þar sólar og samveru áður en haldið var aftur heim. Linda lauk færslunni með hlýjum orðum til foreldra sinna:

„Til hamingju með stór­afmælin elsku mamma og pabbi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“