
Kona er látin eftir að ráðist var á hana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í Svíþjóð.
Samkvæmt heimildum Aftonbladet kom maður aftan að konunni og stakk hana ítrekað. Maðurinn hefur verið handtekinn af lögreglu.
Lögregla var kölluð að Hyllie-hverfinu í Malmö skömmu eftir klukkan 10 í morgun vegna alvarlegs atviks sem hafði átt sér stað nærri matvöruverslun á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum Aftonbladet var um konu að ræða sem hafði verið stungin með hnífi.
Konan var flutt á sjúkrahús en lést af völdum áverka sinna, að sögn lögreglu. Aðstandendum hennar hefur verið tilkynnt um andlátið.
Aftonbladet greinir frá því að atvikið hafi náðst á myndband. Maður hafi komið aftan að konunni og ráðist á hana þar sem hún var óviðbúin. Hann hafi stungið hana ítrekað.
Samkvæmt upplýsingunum gripu nokkrir vegfarendur þá inn í og yfirbuguðu árásarmanninn og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.
Lögregla vill ekki staðfesta þær upplýsingar en hefur tilkynnt að maður á sextugsaldri hafi verið handtekinn, grunaður um árásina.
Lögregla er enn á vettvangi og rannsakar málið.
„Eftir því sem ég hef heyrt voru vitni sem sáu atvikið og þau verða yfirheyrð,“ segir Tamara Fuentes.
„Ef til eru upptökur úr eftirlitsmyndavélum verða þær einnig skoðaðar nánar,“ bætir hún við.
