
Bresk yfirvöld saka áhrifavaldinn Andrew Tate um að hafa haft í fórum sínum afar gróft klámefni, þar á meðal myndir sem sýna kynferðislegar athafnir fólks með lifandi hesti og ál. Þetta kemur fram í nýjum dómsskjölum sem tengjast beiðni Breta um að Tate verði framseldur frá Bandaríkjunum.
TMZ greinir frá málinu og hefur miðillinn gögnin undir höndum.
Samkvæmt gögnunum telja bresk yfirvöld að í tækjum sem tengd hafa verið við Tate hafi fundist gróft klámefni þar sem fólk stundar kynlíf með lifandi dýrum. Sérstaklega er þar vísað til hests og áls. Einnig er Tate sakaður um að hafa haft undir höndum annað gróft kynferðislegt efni sem sýni athafnir sem geti valdið alvarlegum áverkum á kynfærum.
Ásakanirnar ná þó mun lengra. Tate er jafnframt sakaður um að hafa búið til og haft undir höndum fjölda kynferðislegra mynda og myndskeiða af einstaklingi undir lögaldri.
Í einu myndskeiði sem yfirvöld vísa til er Tate sagður hafa verið í rúmi með stúlku sem talin er hafa verið 17 ára. Hún hafi verið klædd undirfötum og kysst hann á hálsinn á meðan önnur fullorðin kona hafi einnig tekið þátt.
Saksóknarar halda því fram að skilaboð sýni að Tate hafi vitað að stúlkan væri undir lögaldri. Í einum skilaboðum er hann sagður hafa rætt möguleg lagaleg vandamál vegna aldurs hennar.
Málið gegn Tate í Bretlandi tekur einnig til ásakana um nauðgun, líkamsárásir, mansal og að hafa stjórnað vændi í hagnaðarskyni, auk vörslu á grófu klámefni.
Bresk stjórnvöld óskuðu formlega eftir framsali Tate frá Bandaríkjunum í september. Andrew Tate og bróðir hans, Tristan Tate, eru nú í haldi í Miami þar sem þeir berjast gegn framsali til Bretlands.
Joseph McBride, lögmaður Andrews Tate, hafnar ásökununum harðlega. Hann segir engar sannanir liggja fyrir um að Tate hafi horft á umrætt efni og dregur í efa tengsl hans við tækið sem yfirvöld byggja hluta málsins á. Að hans sögn hafi tækið fundist í húsnæði þar sem margir hafi haft aðgang og sé það ekki lengur í vörslu yfirvalda.
Ásakanirnar hafa ekki verið sannaðar fyrir dómi og Tate neitar sök.
