
Sönghóparnir Kyrja og Yrkja sameina krafta sína í Hallgrímskirkju sunnudaginn 1. nóvember klukkan 17 og flytja Næturvöku eftir Sergei Rachmanínoff. Tónleikarnir verða tileinkaðir fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu og Palestínu.
Verkið, sem einnig er þekkt sem Vespers og Matins, verður flutt af aðeins tuttugu söngvurum og án stjórnanda. Kyrja og Yrkja hafa áður flutt verkið saman í Norðurljósum.
Tónleikarnir fara fram á allra sálna messu og er ætlunin að skapa stund til minningar um látna ástvini með ljósi og tónlist. Gestum gefst kostur á að koma allt að hálftíma fyrir tónleikana og kveikja á kertum til minningar um látna.
Kyrja er karlakór sem stofnaður var árið 2022 með það að markmiði að færa út kvíar hefðbundinnar kórtónlistar. Yrkja er kvennakór sem stofnaður var árið 2025 með sambærileg markmið. Báðir sönghóparnir starfa undir listrænni stjórn Philips Barkhudarov og Sólveigar Sigurðardóttur.
Alls koma tuttugu söngvarar fram á tónleikunum, sópranar, altar, tenórar og bassar og er viðburðurinn haldinn í samstarfi við Hallgrímskirkju.
