
Heimilislæknir fannst látin á heimili sínu þar sem hún hélt náttfatapartý fyrir börn, að sögn íbúa á svæðinu.
Hannah Cain, sem var á fimmtugsgsaldri, fannst látin í Dersingham í Norfolk snemma á sunnudagsmorgun. Bærinn er í útjaðri Sandringham-jarðarinnar.
Karlmaður á fimmtugssaldri hefur verið handtekinn grunaður um morð og er enn í haldi lögreglu.
Hannah, sem gekk undir nafninu Dr. Hannah Terry í starfi sínu, starfaði á heilsugæslustöð í nærliggjandi bæ, Grimston. Stöðinni var lokað í dag vegna þess sem stjórnendur lýstu sem „afar erfiðra aðstæðna sem hafa áhrif á starfsfólk okkar“.
Hún starfaði einnig hjá Norfolk Sky Aesthetics, fyrirtæki sem sérhæfir sig í snyrti- og fegrunarmeðferðum.
Íbúar í Dersingham, sem er í um 1,6 kílómetra fjarlægð frá Sandringham-höll, segja að Hannah hafi átt ung börn og að fleiri börn hafi gist á heimili hennar þegar atburðurinn átti sér stað. Húsið er stórt einbýlishús við Fern Hill.
Lögregla var kölluð að húsinu um klukkan 2.20 aðfaranótt sunnudags. Börnin sem þar voru fengu síðan far með lögreglumönnum til fjölskyldna sinna.
Lögregla girti í kjölfarið af svæðið við húsið.
Í gærmorgun sást velunnari leggja blóm fyrir utan húsið að sögn Mirror.
Sérsveitarmenn komu á sendibíl síðdegis í gær og lögðu í innkeyrslu nágranna. Þeir sáust fara í bláa hanska áður en þeir gengu inn í húsið.
Íbúar í þorpinu lýstu því sem rólegum stað í Norfolk. Ein nágrannakona sagði að Hannah hefði búið í húsinu við Fern Hill í tíu ár. Gatan liggur út úr þorpinu, með trjám meðfram veginum, og áfram út í opið sveitaland.
„Hún var yndisleg manneskja og átti þrjú dásamleg ung börn. Það er augljóst að eitthvað hefur farið mjög illa úrskeiðis. Ég er einfaldlega orðlaus, við erum það öll,“ sagði konan.
Karlmaður á tíræðisaldri, sem býr í næsta húsi, sagði að hann hefði ekkert vitað fyrr en lögreglan kom.
„Ég sá þau mjög sjaldan, en börnin voru yndisleg. Þau spörkuðu stundum fótboltanum sínum inn í garðinn minn og ég sparkaði honum aftur til þeirra. Stundum komu þau líka og spurðu hvort þau mættu koma inn og leita að boltanum.“
„Maður les um svona hluti annars staðar,“ sagði annar nágranni. „En maður býst aldrei við að eitthvað þessu líkt gerist svona nálægt manni.“
Annar maður, sem hefur búið í nágrenninu í 50 ár, sagði þorpið einkennast af vinalegu samfélagi.
„Dersingham er kannski ekki með eiginlegan miðbæ, en það hefur hjarta,“ bætti hann við.
Annar íbúi sagði að þetta væri staður þar sem fólk gæti gleymt að læsa bílnum sínum yfir nótt án þess að nokkuð gerðist.
Rannsókn lögreglu stendur enn yfir. Lögregla hefur fengið heimild til að halda hinum grunaða í yfirheyrslu í 32 klukkustundir til viðbótar.
Í tilkynningu frá lögreglunni í Norfolk segir:
„Rannsóknarlögreglumönnum hefur verið veittur viðbótartími til að yfirheyra karlmann sem var handtekinn í tengslum við andlát konu í Dersingham.“
